Tölfræði úr bronsleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júlí 2014 22:43 Robin van Persie og David Luiz takast í hendur eftir leikinn í kvöld. Vísir/Getty
Nokkrir tölfræðimolar úr leik Hollands og Brasilíu:Holland varð fyrsta liðið í sögu HM til að nota alla 23 leikmennina í leikmannahópnum. Metið féll þegar markvörðurinn Michel Vorm kom inná sem varamaðurinn fyrir Jasper Cillesen í uppbótartíma í leiknum í kvöld.Cillesen varð fyrsti markvörðurinn til að vera skipt tvisvar af velli á HM, en hann var tekinn út af í leiknum í kvöld og í leiknum gegn Kosta Ríka í átta-liða úrslitunum þegar hann vék fyrir Tim Krul.Holland varð sjötta liðið til að nota alla þrjá markverðina í leikmannahópnum á einu HM. Áður höfðu Frakkland (1978), Belgía (1982), Tékkóslóvakía (1982), Grikkland (1994) og Portúgal (2014) gert slíkt hið sama.Robin van Persie er nú næstmarkahæsti leikmaður Hollands á HM ásamt Arjen Robben, Wesley Sneijder, Rob Rensenbrink og Dennis Bergkamp en þeir hafa allir skorað sex mörk á HM. Þá þrjá fyrstnefndu vantar því aðeins eitt mark til að ná Johnny Rep sem skoraði sjö mörk á HM 1974 og 1978.Ellefu af þeim 15 mörkum sem Holland skoraði á HM komu í seinni hálfleikjum leikjanna. Fimm þeirra voru skoruð á síðasta stundarfjórðungi leikjanna.Brasilía fékk á sig 14 mörk á HM 2014, en liðið hefur aldrei fengið á sig jafn mörg mörk á HM. Áður hafði Brasilía mest fengið á sig 11 mörk, á HM í Frakklandi 1938.Níu af þeim 14 mörkum sem Brasilía fékk á sig á HM komu á fyrstu 30 mínútum leikjanna.Brasilía tapaði tveimur síðustu leikjum sínum með markatölunni 1-10.Markið sem van Persie skoraði var 100. markið sem Brasilía fær á sig á HM frá upphafi. Jugóslavinn Aleksandar Tirnanić skoraði fyrsta markið sem Brasilía fékk á sig á HM, árið 1930.Gula spjaldið sem Brasilíumaðurinn Oscar fékk fyrir að reyna að fiska vítaspyrnu í seinni hálfleik var fyrsta gula spjaldið sem er gefið fyrir leikaraskap á HM í Brasilíu.Fyrir leikinn hafði Brasilía ekki tapað tveimur leikjum í röð á heimavelli frá árinu 1940, þegar liðið tapaði 0-3 fyrir Argentínu og 3-4 fyrir Úrúgvæ.Þetta var annað sinn sem gestgjafar tapa leiknum um bronsið. Það gerðist fyrst árið 2002 þegar S-Kórea tapaði 3-2 fyrir Tyrklandi í bronsleiknum.Þetta var 10. bronsleikurinn í röð þar sem skoruð voru þrjú eða fleiri mörk.Nú hafa 170 mörk verið skoruð á HM og það vantar því aðeins eitt mark til að jafna metið frá 1998, en þá var skorað 171 mark.
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Bjarga Brassar andlitinu í Brasilíuborg? Brasilía og Holland mætast í leiknum um þriðja sætið á HM 2014 í fótbolta í kvöld klukkan 20.00. 12. júlí 2014 06:00 Van Gaal: Viljum snúa taplausir heim Holland og Brasilía mætast í kvöld í leiknum um bronsið á HM í fótbolta. Brasilíumenn brolentu eins og frægt er orðið gegn Þjóðverjum, en Hollendingar féllu úr leik gegn Argentínumönnum eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni. 12. júlí 2014 11:52 Öruggur sigur Hollands í leiknum um bronsið | Myndir Holland tryggði sér bronsverðlaun á HM í fótbolta með 3-0 sigri á Brasilíu í leiknum um þriðja sætið í Brasilíuborg í kvöld. 12. júlí 2014 00:01 Scolari hefur skilað góðu starfi Þrátt fyrir afhroðið sem brasilíska landsliðið beið gegn því þýska í undanúrslitum HM í knattspyrnu á þriðjudaginn hefur verðandi forseti brasilíska knattspyrnusambandsins lýst yfir stuðningi við Luiz Felipe Scolari, þjálfara liðsins. 12. júlí 2014 13:09 Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Fleiri fréttir Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Ronaldinho tók skóna af hillunni eftir níu ár: „Við munum gera eitthvað sérstakt“ Hefur komið Eiði Smára skemmtilega á óvart við HM Mikil upplifun fyrir fólkið í bænum að mæta Man. Utd Ancelotti staðfesti að hann getur notað Neymar í fyrsta sinn í kvöld Sjá meira
Bjarga Brassar andlitinu í Brasilíuborg? Brasilía og Holland mætast í leiknum um þriðja sætið á HM 2014 í fótbolta í kvöld klukkan 20.00. 12. júlí 2014 06:00
Van Gaal: Viljum snúa taplausir heim Holland og Brasilía mætast í kvöld í leiknum um bronsið á HM í fótbolta. Brasilíumenn brolentu eins og frægt er orðið gegn Þjóðverjum, en Hollendingar féllu úr leik gegn Argentínumönnum eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni. 12. júlí 2014 11:52
Öruggur sigur Hollands í leiknum um bronsið | Myndir Holland tryggði sér bronsverðlaun á HM í fótbolta með 3-0 sigri á Brasilíu í leiknum um þriðja sætið í Brasilíuborg í kvöld. 12. júlí 2014 00:01
Scolari hefur skilað góðu starfi Þrátt fyrir afhroðið sem brasilíska landsliðið beið gegn því þýska í undanúrslitum HM í knattspyrnu á þriðjudaginn hefur verðandi forseti brasilíska knattspyrnusambandsins lýst yfir stuðningi við Luiz Felipe Scolari, þjálfara liðsins. 12. júlí 2014 13:09