Þrjár kúrdískar konur fundust myrtar í París 11. janúar 2013 09:00 Hundruð manna söfnuðust saman fyrir utan miðstöð Kúrda í París í gær. nordicphotos/AFP
Hundruð Kúrda í París söfnuðust í gær saman fyrir utan miðstöð Kúrda þar sem þrjár konur fundust myrtar í fyrrinótt. Innanríkisráðherra Frakka segir konurnar hafa verið teknar af lífi. Daginn áður höfðu Tyrkir gert friðarsamning við Kúrda. Þrjár konur fundust myrtar í upplýsingamiðstöð Kúrda í París í fyrrinótt. Manuel Valls, innanríkisráðherra Frakklands, segir að konurnar hafi hreinlega verið teknar af lífi. Hinar myrtu voru Kúrdar. Ein þeirra var Sakine Cansiz, sem tók árið 1978 þátt í að stofna Verkamannaflokk Kúrdistans (PKK), samtök sem hafa síðan 1984 barist fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis Kúrda í austurhluta Tyrklands. Stjórnvöld í Tyrklandi, Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og fleiri ríkjum flokka þessi samtök sem hryðjuverkasamtök. Hinar konurnar tvær voru Fidan Dogan, starfsmaður upplýsingamiðstöðvarinnar, og Leyla Soylemez. Konurnar þrjár höfðu verið einar í upplýsingamiðstöðinni á miðvikudaginn. Ekki náðist samband við þær símleiðis og því héldu vinir þeirra á vettvang stuttu eftir miðnætti. Þeir þurftu að brjótast inn um dyr til að komast inn og fundu þá líkin. Tvær kvennanna voru með skotsár á hálsi en sú þriðja á enni og maga.Allt er á huldu um ástæðu morðanna. Fljótlega eftir að fréttist af morðunum héldu hundruð Kúrda á vettvang og söfnuðust saman í götunni fyrir utan upplýsingamiðstöðina, sem er í tíunda hverfi Parísarborgar. Fjölmargir Kúrdar búa í Frakklandi, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Franska lögreglan hefur nokkrum sinnum handtekið Kúrda sem grunaðir eru um að hafa útvegað PKK fé með ólögmætum hætti. Sama dag og konurnar voru myrtar höfðu tyrkneskir fjölmiðlar skýrt frá því að samkomulag hefði tekist milli tyrkneskra stjórnvalda og Abdullah Öcalan, stofnanda og helsta leiðtoga PKK, en Öcalan hefur verið í fangelsi síðan 1999. Tyrknesk stjórnvöld hafa oft sakað bæði Frakka, Þjóðverja og Hollendinga um að styðja PKK, meðal annars með því að framselja ekki grunaða hryðjuverkamenn til Tyrklands.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Sjá meira