Erlent

Súnníar hættir í nefndinni

Súnníar hafa dregið sig úr stjórnarskrárnefnd Íraks eftir að Mijbil Issa félagi þeirra var myrtur í fyrradag. Þá var gerð sjálfsmorðsárás í Bagdad sem tíu manns dóu í. Issa var á meðal fimmtán súnnía í nefndinni og þeim var sérstaklega ætlað að gæta hagsmuna sinna umbjóðenda við samningu stjórnarskrárinnar. Félagar segjast ekki geta setið í nefndinni á meðan öryggi þeirra er ekki betur tryggt. Tímenningarnir sem voru drepnir í gær voru umsækjendur um störf í lögreglunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×