Real Madrid í vandræðum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Baráttan í Kiev í kvöld.
Baráttan í Kiev í kvöld. Stanislav Vedmid/Getty

Real Madrid tapaði í kvöld öðru sinni fyrir Shahktar Donetsk í B-riðli Meistaradeildarinnar en Shakhtar vann 2-0 sigur í leik liðanna í dag.

Þrátt fyrir að vera með hálft liðið í sóttkví í fyrri leik liðanna gerðu Úkraínumennirnir sér lítið fyrir og unnu á Spáni. Þeir endurtóku svo leikinn í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik á Stadion NSK Olimpiyskiy í Kiev en Dentinho kom Shahktar yfir á 57. mínútu og átta mínútum fyrir leikslok tvöfaldaði Manor Solomon forystuna.

Real er því með sjö stig í 3. sæti riðilsins, líkt og Shakhtar, sem er ofar á innbyrðisviðureign. Mönchengladbach er á toppnum með átta og Inter á botninum með tvö en þau mætast í kvöld.

Í síðustu umferðinni fær Real Þjóðverjana í heimsókn og þurfa vinna þann leik, eða að minnsta kosti ná jafntefli, og treysta á hagstæð úrslit.

Í hinum leik dagsins sem lokið er vann Salzburg 3-1 sigur á Lokamotiv Moskvu. Mergim Berisha kom Salzburg í 2-0 með tveimur mörkum í fyrri hálfleik en Anton Miranchuk minnkaði muninn úr víti.

Karim Adeyemi skoraði þriðja mark Salzburg níu mínútum fyrir leikslok en Salzburg er nú með fjögur stig í þriðja sætinu. Lokomotiv er á botninum með þrjú stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira