Stendur ekki í vegi fyrir vilja almennings ef óvissunni verður eytt 21. maí 2012 15:07 „
Ef þjóðinni hefur tekist að eyða margvíslegri óvissu, varðandi stjórnarskrá, stöðu þjóðarinnar á alþjóðavettvangi, efnahagslíf og lífskjör almennings og þegar kominn er stöðugleiki í stjórnarfari og ný stjórnarskrá, þá myndi ég ekki standa í veginum fyrir því ef þjóðin vill þá velja sér nýjan forseta. Það er ákvörðun þjóðarinnar, ekki mín." Þarna skýrir Ólafur Ragnar Grímsson forseti eigin orð, og svarar um leið spurningu Jóhannesar Benediktssonar í Beinni línu á dv.is í dag. Jóhannes bað Ólaf Ragnar um að skýra þau umdeildu orð að hann myndi hugsanlega hverfa til annarra verkefna áður en næsta kjörtímabili lyki, yrði hann endurkosinn. Setning Ólafs Ragnars, sem um ræðir, er eftirfarandi: „Það er einlæg ósk mín að þjóðin muni sýna því skilning [...], muni ég hverfa til annarra verkefna áður en kjörtímabilið er á enda og forsetakjör fari þá fram fyrr." Um þessi orð hefur orðið töluverður misskilningur, til dæmis hafa sumir lagt þann skilning í orð forsetans að hann hygðist eingöngu sitja hálft kjörtímabil. Þessu neitaði Ólafur Ragnar algjörlega fyrr í fyrirspurnunum. Svo virðist sem Ólafur Ragnar muni ekki sitja skemur nema margvísislegri óvissu verði eytt, og þá mun hann ekki standa í vegi fyrir vilja almennings, kjósi þjóðin að velja sér nýjan forseta. Ólafur Ragnar var ennfremur spurður út í það hvað hann ætti við þegar hann talaði um óvissutíma. Ragnar Pétursson spurði: „Þú talar um óvissutíma. Felur það í sér að þjóðin og ráðamenn hennar geti að þínu mati farið illa að ráði sínu á næstu misserum, glutrað niður tækifærum eða fært mál til verri vegar? Hvernig þá helst?" Ólafur Ragnar svaraði þá: „Óvissa er um nýja stjórnarskrá, óvissa um fjölda flokka og stöðuna á Alþingi að loknum næstu þingkosningum, óvissa um samband okkar við Evrópu, ýmis konar óvissa í efnahagsmálum. Þótt okkur hafi miðað áfram í áttina að endurreisn þarf ennþá að efla sóknina á mörgum sviðum og skapa nýjum kynslóðum fjölda tækifæra." Hægt er að fylgjast með fyrirspurnunum hér. Þar er farið yfir víðan völl og margt nýtt sem kemur í ljós. Meðal annars vill forsetinn helst að ástralski leikarinn Russel Crowe leiki sig ef það yrði gerð bíómynd um líf forsetans.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira