Hústökumaður fangelsaður í fyrsta sinn BBI skrifar 28. september 2012 11:00 Mynd úr safni. Mynd/AFP
Rúmlega tvítugur maður var nýverið dæmdur til fangelsisvistar í Bretlandi fyrir að gera hús sem hann átti ekki að dvalarstað sínum. Þetta er í fyrsta sinn sem hústökumaður er dæmdur eftir nýrri löggjöf um hústökur sem tók gildi 1. september í ár í landinu. Það var Alex Haigh sem var dæmdur til 12 vikna fangelsisvistar fyrir hústöku en frá þessu er greint í breska blaðinu The Guardian. Breska lögreglan handtók Haigh ásamt tveimur öðrum í íbúð á Cumberland Street í byrjun september. Þeir voru allir ákærðir fyrir hústöku, Haigh hefur þegar verið sakfelldur en hinir tveir bíða dóms. Löggjöfin sem um ræðir gerir hústökur refsiverðar, þ.e. að slá eign sinni á hús sem standa auð eða gera þau að dvalarstað sínum. Hér eftir liggur allt að sex mánaða fangelsi eða fimm þúsund punda sekt við hústökum í Bretlandi. Talsmenn samtaka hústökufólks segja lögin ósanngjörn. ,,Þetta er sorgardagur í sögu þjóðar okkar, þegar ungur, ómótaður einstaklingur er settur í fangelsi fyrir það eitt að reyna að hafa þak yfir höfuðið,'' sagði Rueben Taylor, frá samtökunum þegar hann heyrði af dómnum. ,,Raunverulegi glæpurinn eru þær 930 þúsund íbúðir sem standa auðar víðsvegar um Bretland, ekki fólkið sem reynir að koma þeim aftur í notkun.''
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira