Erlent

Náði myndum af fornum árfarvegum á Mars

Geimjeppinn Curiosity hefur náð myndum af uppþornuðum árfarvegum á Mars sem sýna að í fortíðinni var rennandi vatn til staðar á plánetunni.

Á myndunum sést grjót sem hefur slípast til í rennandi vatni. Það er hinsvegar talið að þetta vatn hafi runnið á Mars fyrir mjög löngu síðan eða milljörðum ára.

Hinsvegar styðja þessara myndir þá kenningu að vatn hafi verið til staðar á Mars í fortíðinni og raunar er talið að enn sé þar vatn að finna í formi íss sem liggur undir yfirborði plánetunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×