Lögreglumaður stal nektarmyndum af stútum Samúel Karl Ólason skrifar 26. október 2014 11:34 Vísir/Getty
Kona sem handtekin var fyrir ölvunarakstur hefur kvartað yfir því að lögreglumaður sem handtók hana sendi sjálfum sér nektarmyndir úr síma hennar. Á meðan hann fór yfir síma hennar sat hún í fangaklefa. Lögreglumaðurinn segir þetta gerast reglulega meðal lögreglumanna og sjálfur hafi hann gert þetta minnst sex sinnum. Yfirvöld rannsaka nú hvort kæra eigi lögreglumanninn, en ölvunarakstur konunnar hefur verið látinn niður falla. Þrátt fyrir að áfengismagn í blóði hennar hafi verið þrefalt hærra en löglega hámarkið. Lögreglumaðurinn Sean Harrington handtók 23 ára konu fyrir ölvunarakstur í Kaliforníu í ágúst. Hún gaf honum upp lykilorð símans svo hann gæti fundið símanúmer fyrir hana. Þá sendi hann sjálfum sér minnst sex nektarmyndir sem voru í iPhone síma hennar. Þetta kemur fram á vef Contra Costa Times. Hann eyddi öllum gögnum um sendingarnar úr símanum, en konan tók eftir því í iPadinum sínum fimm dögum seinna, sem er samtengdur símanum. Hún fletti upp símanúmerinu sem myndirnar voru sendar í og komst að því að það var skráð á Harrington.Líta á þetta sem leik Samkvæmt San Jose Mercury News viðurkenndi Harrington að hann og aðrir lögreglumenn hafi stundað þetta um árabil og líti á þetta sem leik. Hann sagði lögreglumönnum sem rannsaka málið að hann hefði fyrst gert þetta þegar hann starfaði í Los Angeles. Þá hafi aðrir lögreglumenn kynnt honum fyrir þessum „leik“ þar sem þeir leiti í símum kvenna sem hafa verið handteknar eftir nektarmyndum og sendi öðrum lögreglumönnum myndirnar. Í nýjum dómsgögnum sem San Jose Mercury blaðið hefur undir höndunum er vísað til annars máls þar sem lögreglumaður sendi öðrum myndir af 19 ára stúlku á bikíní með textanum: „Tók þetta úr síma 10-15x á meðan hún er í röntgen.“ SJM segir að konan hafi lent í árekstri og verið á sjúkrahúsi þegar myndin var send. Sá sem tók við myndinni svaraði og spurði hvort það væru engar almennilegar nektarmyndir í símanum.Hér má sjá frétt ABC um málið
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Fleiri fréttir Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Sjá meira