Lögreglan ræðst gegn óeirðaseggjum 3. mars 2007 11:48
Danska lögreglan hefur farið hús úr húsi í Kaupmannahöfn í morgun og handtekið grunaða óeirðaseggi. Vel á annað hundrað mótmælendur voru handteknir í óeirðum á Norðurbrú og í Kristjánshöfn í nótt. Til átaka kom þar aðra nóttina í röð. Mótmælendur boða aðgerðir víða í Kaupmannahöfn í dag. Það var snemma á fimmtudaginn sem lögregla rýmdi æskulýðsmiðstöðina með valdi. Húsið var selt fyrir fimm árum og fyrir hálfu ári var hústökufólki gert að fara þaðan. Ungmennin gerðu það ekki og því var gripið til aðgerða. Annað hús stóð þeim til boða fyrir mótmælin en það tilboð hefur nú verið tekið af borðinu. Mótmælin hófust með friðsamlegum hætti á Sánkti Hans torgi í gærkvöldi þegar vel á annað þúsund manns komu saman. Friðsamlegur mótmælafundur snerist upp í óeirðir skömmu eftir miðnætti. Lögregla notaði táragas til að dreifa mannfjöldanum. Mótmælendur svöruðu með eldsprengjum og grjóthnullungum. Kveikt var í nærri tuttugu bílum, þar á meðal einum lögreglubíl. Óeirðarseggir létu einnig til skarar skríða í Kristjánshöfn nærri Kristjaníu í nótt. Þeir réðust inn í framhaldsskóla þar og brutu allt þar inni og brömluðu. Tölvurnar flugu út um glugga skólans í látunum. Lögregla segir aðgerðir liðinnar nætur hafa virst betur skipulagðar en mótmælin í fyrrinótt. Vel á annað hundrað mótmælendur voru handteknir í nótt og í morgun fór lögregla hús úr húsi og handtók grunaða óeirðaseggi. Að sögn danskra miðla hafa á fimmta hundrað mótmælendur verið handteknir síðan á fimmtudaginn. Aðgerðir hafa verið boðaðar víða um Kaupmannahöfn í dag. Á vefsíðu Ungdómshússins má finna leiðbeiningar um það hvernig skulu mótmæla eftir að húsið er rýmt. Á þriðja degi, það er að segja í dag, er gert ráð fyrir svokölluðum aðgerðardegi. Mótmælendur eru hvattir til að nota ímyndunaraflið. Hægt sé að stöðva umferð með margvíslegum hætti, leggja undir sig byggingar og annað sem vekji athygli á málstað þeirra. Mynd/TeiturMynd/TeiturMynd/HariMynd/TeiturMynd/HariMynd/HariMynd/Hari
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar ætla ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Sjá meira