Lífið

Kardashian-barn komið í heiminn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Scott og Kourtney.
Scott og Kourtney. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian eignaðist barn í gær - lítinn snáða.

Þetta er þriðja barn Kourtney og hennar heittelskaða, Scott Disick, en fyrir eiga þau drenginn Mason, fimm ára og dótturina Penelope, tveggja ára. Þess má geta að nýjasti fjölskyldumeðlimurinn fæddist einmitt á afmælisdegi Masons.

Kourtney deildi mynd á Instagram einum degi áður en snáðinn fæddist. Á myndinni sést dúkka liggja í vöggu á heimili fjölskyldunnar.

„Einhver er byrjaður að nota nýju vögguna,“ skrifaði Kourtney við myndina.

Nap time! Someone's already using our new crib.

Kuva, jonka Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) julkaisi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.