Tífalt fleiri í offitumeðferð 13. október 2005 15:31
Undanfarin tvö ár hafa tífalt fleiri sóst eftir meðferð vegna offitu á Reykjalundi en gert er ráð fyrir að stofnunin geti tekið við. Til að bregðast við hefur Reykjalundur tekið við meira en helmingi fleiri en samningur við ríkið kveður á um. Tíðni offiitu hefur aukist mikið hér á landi á undanförnunm árum. Að sama skapi hefur skurðaðgerðum sem miða að því að hjálpa offitusjúklingum fjölgað til muna. Enginn fer í slíka aðgerð nema hann hafi farið í meðferð á Reykjalundi fyrst. Nokkur hluti þeirra sem þangað leita þarf síðan ekki á aðgerð að halda eftir meðferðina. Hjördís Jónsdóttir, lækningafostjóri á Reykjalundi, segir að á síðasta ári hafi 240 manns falast eftir meðferð á Reykjalundi vegna offitu. Árið 2003 bárust Reykjalundi 340 beiðnir vegna slíkra meðferða. Nú eru um það bil 350 á biðlista hjá Reykjalundi vegna þessa. Að sögn Hjördísar kveður samningur Reykjalundar við hið opinbera á um að stofnunin skuli taka við 25 manns vegna offituvandamála á ári hverju. Starfsmenn Reykjalundar hafa hins vegar lagt hart að sér og vegna mikillar eftirspurnar hefur tekist að veita um 60 manns meðferð undanfarin tvö ár. Nú er hins vegar í bígerð samningur við heilbrigðisráðuneytið fyrir árin 2006 til 2008 og er gert ráð fyrir því að í lok árs 2008 geti Reykjalundur tekið við um hundrað manns á ári vegna offituvanda. Í heilbrigðisáætlun hins opinbera frá árinu 2000, sem gildir til ársins 2010, er nær ekkert minnst á offitu og er hún ekki skilgreind sem forgangsverkefni hjá heilbrigðisyfirvöldum fram til þess tíma.
Fréttir Innlent Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Sjá meira