Íslenski boltinn

Nýir búningar hjá KR

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Katrín Ásbjörnsdóttir og Skúli Jón Friðgeirsson frumsýna hér nýja búninginn. Mynd/KR
Katrín Ásbjörnsdóttir og Skúli Jón Friðgeirsson frumsýna hér nýja búninginn. Mynd/KR

KR mun mæta til leiks í talsvert breyttum búningi næsta sumar því Shell-merkið er horfið af búningi félagsins eftir að hafa verið til ansi margra ára.

Í staðinn er komið merki Eimskipafélagsins en þar sameinast elsta knattspyrnufélag landsins og elsta skipafélag landsins.

Það er óhætt að segja að KR-búningurinn breytist nokkuð við þessa breytingu eins og sjá má á myndinni hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×