Lekinn óþolandi með öllu 13. október 2005 14:44
Forseti Alþingis og fyrsti varaforseti segja óþolandi með öllu að stefnuræða forsætisráðherra skuli hafa ratað inn á borð fjölmiðla. DV greindi í dag frá efni fyrstu stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar sem flutt verður í kvöld. Allir þingmennirnir, sextíu og þrír, liggi undir grun. Ræðan var afhent þingismönnum á föstudag og var sérstaklega merkt sem trúnaðarmál, að vanda. Vegna fréttar DV sendi forsætisráðuneytið frá sér tilkynningu þar sem segir að ljóst sé að með fréttaflutninig af efni ræðunnar hafi trúnaðarskylda, sem kveðið er á um í lögum, verið brotin. Þetta er reyndar í annað skiptið á jafn mörgum árum sem fjölmiðlar birta efni úr stefnuræðu forsætisráðherra áður en hún er flutt en það var fréttastofa Stöðvar 2 sem greindi frá innihaldi hennar á síðasta ári. Þá var talað um að gera gangskör vegna lekans en lítið varð úr. Guðmundur Árni Stefánsson, fyrsti varaforseti Alþingis, segir að rætt hafi verið um málið í forsætisnefndinni og hann hyggur að farið hafi verið yfir það í flestum þingflokkum. Hann segir hins vegar ekki margt til ráða. Lögreglurannsókn sé til dæmis til lítils. Guðmundut trúir bara ekki öðru en að um slys sé að ræða. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tekur í sama streng og telur þetta óþolandi. Hann segir að slíkur trúnaðarbrestur hljóti að hefna sín, ekki síst á stjórnarandstöðuþingmönnum, verði sú leið farin að breyta þingsköpum á þann hátt að forsætisráðherra flytji stefnuræðu sína fyrst á blaðamannafundi, eða að sá hópur þingmanna sem fái ræðuna í hendur verði skorinn niður. Forseti Alþingis ræddi málið meðal annars við forsætisráðherra í morgun en engar ákvarðanir voru teknar um slíkar breytingar. Ritstjórnir fjölmiðla líta málið ólíkum augum en deilt er um hvort trúnaður skuli ríkja ef fjölmiðlar ná í ræðuna eftir eigin leiðum. Spurður hver skaðinn sé af slíkri birtingu segir Guðmundur Árni hann auðvitað ekki vera stórkostlegan. „Það hefur enginn dáið,“ segir Guðmundur.
Alþingi Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna Erlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Fleiri fréttir Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Sjá meira