Kjarnorkubjörninn ekki unninn 17. október 2005 23:43
Loforði Norður-Kóreu um að hætta við kjarnorkuvopnaáætlun sína hefur verið fagnað, en menn óttast þó að björninn sé ekki endanlega unninn. Það er ekkert leyndarmál að Norður-Kóreumenn voru keyptir til þess að gefa upp kjarnorkuvopnaáætlun sína. Í samkomulagi þar um, sem var undirritað í Peking í dag, er að vísu loforð um að Bandaríkin og Japan leggi af allar áætlanir um innrás í Norður-Kóreu, en það er bara barnalegur fyrirsláttur. Hvorki Bandaríkin né Japan hafa nokkurn áhuga á árás, nema því aðeins að Kóreumenn héldu áfram vopnaáætlun sinni. Það sem skiptir máli í samkomulaginu er að öll löndin fimm, sem stóðu í þessum samningum, gefa loforð um efnahagsaðstoð og viðskipti. Þessi lönd eru Bandaríkin, Kína, Rússland, Japan og Suður-Kórea. Efnahagur Norður-Kóreu er gersamlega í rúst og milljónir manna draga fram lífið á matargjöfum erlendis frá. Því er haldið fram að milljónir hafi þegar soltið í hel og að þau börn sem þó lifa séu alvarlega vannærð. Stjórnvöld í Norður-Kóreu virðast þó ekki hafa áhyggjur af því og hafa áður svikið gefin loforð í kjarnorkumálum sínum. Menn fara því varlega í að fagna endanlegum sigri.
Erlent Fréttir Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Sjá meira