Erlent

Réttarhöldum í Guantanamo frestað vegna fellibyls

Hitabeltisstormurinn Isaac, sem gengur nú fyrir karabískahafið, verður líklega orðinn að fellibyl síðdegis í dag. Þetta er mat veðurfræðinga við veðurathuganarstöð Flórída-ríkis í Bandaríkjunum.

Talið er að á laugardag muni óveðrið ganga yfir Kúbu. Fréttastofan CNN greinir frá því að búið sé að fresta réttarhöldum yfir fimm grunuðum hryðjuverkamönnum í Guantanamo-búðunum. Mennirnir eru grunaðir um aðild að hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum 11. september árið 2001.

Yfirvöld vestanhafs fylgjast grannt með gangi mála og verður fellibylsviðvörun send út ef stormurinn sækir í sig veðrið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×