Stefán Karl með nokkur tilboð á borðinu Freyr Gígja Gunnarsson skrifar 10. desember 2008 08:00 Fer á kostum. Stefáni Karli er hrósað í hástert af bandarískum gagnrýnendum fyrir frammistöðu sína sem Trölli. „
Það eru nokkur tilboð sem liggja á borðinu. Ég er hins vegar ekkert að pæla í því núna. Ég fer bara yfir málin með umboðsmanni í janúar og við leggjum upp árið í sameiningu," segir Stefán Karl Stefánsson. Leikaranum hefur verið hrósað í hástert fyrir leik sinn í söngleiknum um Trölla sem nú er sýndur fyrir fullu húsi í Boston. Stefán sagðist ekki hafa hugmynd um hvort þetta væru áframhaldandi verk í leikhúsi eða jafnvel kvikmyndahlutverk frá Hollywood. „Umboðsmaðurinn vill ekkert segja mér og það er líka bara gott. Ég ætla bara að einbeita mér að þessu verkefni og klára það með stæl." Stefán segir það ekki hafa komið sér á óvart hversu mikla athygli verkið hafi fengið. Athyglin sem hann hafi sjálfur fengið hafi hins vegar komið honum í opna skjöldu. „Þetta er náttúrulega afrakstur af margra ára vinnu og þolinmæði. Þetta var eitthvað sem stefnt var að og það er gaman að sjá markmiðin sín rætast," segir Stefán og bætir við að nú þurfi bara að hamra járnið á meðan það er heitt. Dómar sem hafa birst í bandarískum blöðum eru eiginlega allir á sömu lund. Stefán sé stjarna sýningarinnar og beri hana nánast uppi.„Frammistaða Stefáns Karls sem Trölli er næg ástæða til að fara með börnin á þessa sýningu," skrifar Jenna Schere, gagnrýnandi hjá Boston Herald. Gagnrýnanda Boston Globe, Louise Kennedy, tekst að halda sér á jörðinni hvað sýninguna varðar. Segir hana of langa. Kennedy bætir því hins vegar við að Stefán Karl fari á kostum og að nærvera hans standi upp úr í þær níutíu mínútur sem sýningin standi yfir.
Mest lesið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Lífið Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest Lífið „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Sjá meira