Tónlist

Skálm­öld hættir í bili

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Skálmöld hættir störfum eftir áratug.
Skálmöld hættir störfum eftir áratug. facebook/skjáskot
„Skálmöld hefur ákveðið að taka sér pásu eftir árið 2019 um óráðinn tíma.“ Þetta segir í tilkynningu frá þungarokkssveitinni á Facebook síðu hennar. Skálmöld hefur verið gríðarlega vinsæl jafnt innanlands sem utan.

Í tilkynningunni segir einnig að tíu ára tónleikastand hafi tekið sinn toll á hljómsveitarmeðlimi, sem hafi þurft að leggja önnur verkefni til hliðar, bæði persónu- og vinnutengd. Nú sé kominn tími til að búa til pláss fyrir þau.

Ákvörðun hljómsveitarinnar um að taka sér pásu kemur eflaust mörgum á óvart en hljómsveitin fór í tónleikaferð í fyrravetur og spilaði á ýmsum tónlistarhátíðum í sumar. „Við erum búnir að ræða þetta okkar á milli í dálítinn tíma þannig að þetta er engin skyndiákvörðun,“ segir Jón Geir Jóhannsson, trommari sveitarinnar í samtali við fréttastofu Vísis.



Hann segir ekki útilokað að sveitin snúi aftur: „Já, það held ég alveg. Hvenær það verður veit ég ekki. En eins og ég segi þá er þetta bara akkúrat rétti tíminn til að stíga aðeins aftur og verja tíma með fjölskyldunni.“

„Hætta hljómsveitir einhvern tíman? Nema bara hljómsveit eins og Bítlarnir og það er bara af því að þeir fóru að deyja. Við erum ekkert í því,“ segir Jón Geir hlæjandi.

Hljómsveitin mun halda eins konar kveðjutónleika þann 21. desember næstkomandi á vetrarsólstöðunum. „Merkið 21. desember í dagatalið og reiknið með að vera í Reykjavík á þeim tíma ef þið viljið fagna með okkur. Þá höldum við veislu sem fer svo sannarlega í sögubækurnar, viðburð sem við kynnum mjög bráðlega,“ bætir sveitin við í færslunni.

„Takk fyrir ótrúlegan áratug. Litla hobbíbandið okkar varð svo sannarlega að skrímsli og nú þarf að hvíla sig.“


Tengdar fréttir

Síðustu heiðarlegu Skálmaldartónleikar ársins

Skálmöld er komin heim eftir mikið tónleikaferðalag erlendis og ætlar að sinna Íslendingum eftir langan þurrk. Tvöfaldir tónleikar á Gauknum auk annarra á Græna hattinum og svo er það Sinfóníuhljómsveitin í ágúst í Eldborg. Svo er verið að vinna í nýrri músík.

Skálmeldingar spila á hátíð með Slayer

Þungarokkshljómsveitin Skálmöld, sem nýverið gaf út plötuna Sorgir, spilar í sumar á Graspop-þungarokkshátíðinni þar sem margar af stærstu þungarokkssveitum heims koma fram. Snæbjörn Ragnarsson var búinn að gleyma að hann hefði verið bókaður á hátíðina.

Hér eru ekkert nema andskotans snillingar

Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands, ásamt Karlakór Reykjavíkur, kammerkórnum Hymnodia og Barnakór Kársnesskóla, blása til veislu næstu daga í Hörpu sem rúmlega 7.200 manns munu njóta.

Almenn gleði skilar sér á plötuna

Skálmöld gefur út sína fimmtu plötu á morgun sem ber nafnið Sorgir. Átta lög sem renna ljúflega. Snæbjörn Ragnarsson fór yfir árin tíu sem hafa liðið frá því að hljómsveitin sló sinn fyrsta hljóm.

Telja í gamaldags rokkhátíð á Hard Rock

Ein vinsælasta þungarokkshljómsveit landsins, Skálmöld, hleður í ferna tónleika á næstunni. Þeir byrja á Hard Rock um helgina en færa sig svo til Akureyrar.

Varð heltekinn af Sturlungu

Fjórar skáldsögur Einars Kárasonar um Sturlungaöld koma út í einni bók. Erlendir aðilar sýna áhuga á að kvikmynda sögurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×