Bíó og sjónvarp

Natalie Portman mun taka við hlutverki Þórs

Eiður Þór Árnason skrifar
Tilfærsla Mjölnis á sér fordæmi í teiknimyndasögum Marvel um Þór.
Tilfærsla Mjölnis á sér fordæmi í teiknimyndasögum Marvel um Þór. Vísir/AP
Natalie Portman mun fara með hlutverk Þórs í næstu stórmynd Marvel um þrumuguðinn sem áætlað er að verði frumsýnd haustið 2021. Þetta kom fram í kynningu Marvel í gær á Comic-Con ráðstefnunni sem nú fer fram í San Diego í Bandaríkjunum.

Þar kynnti Marvel þær fjölmörgu kvikmyndir sem væntanlegar eru frá kvikmyndaverinu fram að árinu 2021. Kvikmyndin verður sú fjórða úr smiðju Marvel um Þór og hefur hlotið heitið Thor: Love and Thunder.

Portman lék Jane Foster í fyrstu tveimur myndunum um þrumuguðinn og mun að þessu sinni taka við hamrinum Mjölni. Einnig var greint frá því að Tessa Thompson muni snúa aftur í myndinni sem Valkyrja.


Tengdar fréttir

Marvel slær öll met 

Eins og milljarðamæringurinn sérvitri Tony Stark sagði eitt sinn skiptir ekki máli hversu ríkur þú ert, þú getur ekki keypt þér tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×