Tónlist

Skralllag með Palla á Rassabassa Ella Grill

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Tíundi áratugurinn svífur yfir vötnum á plötunni.
Tíundi áratugurinn svífur yfir vötnum á plötunni.
Í dag kemur út þriðja plata Ella Grill, Rassa bassi vol.2. Tónlistin er dansvæn og sækir ýmislegt í klúbbatónlist tíunda áratugarins. Enginn annar en Páll Óskar Hjálmtýsson er með stjörnuinnkomu í einu lagi plötunnar, en það nefnist Party tæm.

Þetta er þriðja platan sem kemur út með Ella á jafnmörgum árum, en 2017 kom út platan Þykk fitan vol.5 og í fyrra var það platan Pottþétt Elli Grill.

Sú síðarnefnda vann til Kraumsverðlauna og hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna.

Plötuumslagið er uppfullt af skírskotunum til tíunda áratugarins. Sem dæmi má nefna svokallaðan „acid house“ broskall, en umslag síðustu plötu Ella stælaði einmitt umslög Pottþétt-plötu seríunnar sem var afar vinsæl á þeim tíma.
Trapp-byggða hipp-hoppið hefur verið skilið eftir við vegkantinn á nýju plötunni, og kveður við nýjan tón hjá Ella.

Teknótaktar eru allsráðandi og flutningur Ella dynur í sama hrynjanda. Þyrluhattar eru alls fjarverandi og í staðinn spyrnir Elli sperrtur fjórum í flórinn.

Á Pottþétt Ella Grill mátti greina þróun í átt að slíkri taktfastri reiftónlist en á Rassa bassa er stökkið tekið alla leið.

Djöflakenndur sýruhljómur einkennir þó enn tónlist Ella þó hrynjandinn sé beinskeyttari en áður.

Balatron pródúseraði plötuna, en hann kom einnig að gerð síðustu plötu Ella. Hér að neðan má streyma plötunni nýútgefnu.






Tengdar fréttir

Með teknó-ið djúpt í blóðinu

Rapparinn Elli Grill úr Shades of Reykjavík hefur vakið athygli fyrir einstakan lífsstíl, áhugaverð tónlistarmyndbönd og óhefðbundið rapp. Í nóvember er von á annarri sólóplötu hans, Pottþétt Elli.

Elli Grill frumsýnir nýtt myndband

Í dag sendir tónlistarmaðurinn Elli Grill frá sér nýtt myndband við lagið ÁETTA MÁETTA sem er að finna á plötu hans Pottþétt Elli Grill sem kom út í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×