Þrenna Sterling kafsigldi Tékkum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Raheem Sterling fékk að eiga boltann
Raheem Sterling fékk að eiga boltann vísir/getty
Tékkar voru engin fyrirstaða fyrir Englendinga á Wembley í kvöld þar sem liðin áttust við í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2020.

Raheem Sterling opnaði markareikninginn á 24.mínútu og í kjölfarið héldu honum engin bönd. Hann fiskaði vítaspyrnu sem Harry Kane skoraði úr áður en Sterling fullkomnaði svo þrennu sína með tveimur mörkum um miðbik síðari hálfleiks.

Niðurlæging Tékka var svo kóronuð þegar Tomas Kalas setti boltann í eigið net og lokatölur 5-0 fyrir Englandi. 

Á sama tíma tókst Cristiano Ronaldo og félögum í portúgalska landsliðinu ekki að finna leið framhjá Úkraínumönnum þegar liðin áttust við í Portúgal í B-riðli. Lokatölur 0-0.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira