Frakkar skoruðu fjögur í Moldavíu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Griezmann í gírnum
Griezmann í gírnum vísir/getty
Heimsmeistarar Frakka buðu upp á markaveislu í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2020 þegar þeir sóttu Moldavíu heim en liðin eru í riðli með Íslandi.

Antoine Griezmann braut ísinn eftir 24 mínútna leik þegar hann skoraði eftir frábæran undirbúning Paul Pogba. Griezmann lagði svo upp mark fyrir Raphael Varane skömmu síðar. Olivier Giroud var næstur og hann sá til þess að Frakkar færu með þriggja marka forystu í leikhléið.

Kylian Mbappe kom Frökkum í 4-0 á 87.mínútu en Moldavía náði að klóra í bakkann í restina með marki Vladimir Ambros á 89.mínútu.

Næsti leikur Frakklands er gegn Íslandi í París á mánudag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira