Stelpurnar okkar mæta Kanada og Skotlandi á Algarve Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2019 11:00 Íslenska kvennalandsliðið syngur þjóðsönginn fyrir leik á Algarve mótinu í fyrra. Vísir/Getty
Íslenska kvennalandsliðið hefur nú fengið að vita með hvaða þjóðum liðið er með í riðli í Algarve bikarnum sem hefst í lok febrúar en þetta er í fyrsta sinn sem liðið spilar á þessu sterka árlega æfingamóti undir stjórn nýja landsliðsþjálfarans, Jóns Þórs Haukssonar. Íslensku stelpurnar eru samt að taka þátt í Algarve bikarnum þrettánda árið í röð en íslenska liðið hefur ekki misst af mótinu frá og með árinu 2007. Íslenska landsliðið var síðan einnig með 1996 og 1997. Sú breyting hefur orðið á mótinu að lið spila nú þrjá leiki í stað fjögurra. Þetta er gert til að minnka leikjaálag á þeim stutta tíma sem mótið fer fram á. Þrjú lið skipa því hvern riðil á mótinu sem fer fram 27. febrúar til 6. mars. Ísland er í riðli með Kanada og Skotlandi en báðar þessar þjóðir eru á leiðinni á HM í Frakklandi næsta sumar. Kanada (5. sæti) er sautján sætum ofar en Ísland á FIFA-listanum en þær skosku (20. sæti) eru tveimur sætum ofar en Ísland (22. sæti). Ísland hefur aðeins einu sinni áður mætt Kanada, en það var einmitt í Algarve bikarnum árið 2016. Sá leikur endaði með 1-0 sigri Kanada. Skotland hefur hins vegar verið tíu sinnum andstæðingur Íslands til þessa. Ísland hefur unnið fimm leikjanna, tveir hafa endað með jafntefli og Skotar hafa þrisvar staðið uppi sem sigurvegarar. Þetta verður samt tólfti leikur þjóðanna og sá annar á stuttum tíma. Liðin mætast nefnilega einnig 21. janúar næstkomandi í vináttuleik á La Manga, Spáni.
Fótbolti Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Arsenal - Brighton | Halda Skytturnar toppsætinu? Enski boltinn Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Enski boltinn Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Íslenski boltinn Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Fleiri fréttir Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Liverpool - Wolves | Jota heiðraður á Anfield Arsenal - Brighton | Halda Skytturnar toppsætinu? Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Sjá meira