Innlent

Hola íslenskra fræða úr sögunni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Framkvæmdasvæðið í morgun. Þarna er enga holu að sjá.
Framkvæmdasvæðið í morgun. Þarna er enga holu að sjá. FSR

Rúmlega sex og hálfu ári eftir að fyrsta skóflustungan var tekin að Húsi íslenskra fræða við Arngrímsgötu í Reykjavík hefur verið fyllt upp í grunninn. Ginnungagapið sem markaði framkvæmdasvæðið og stóð óhreyft árum saman, hin svokallaða „Hola íslenskra fræða,“ er því formlega úr sögunni.

Framkvæmdir hófust við bygginguna í júlí síðastliðnum og í grunninum hefur nú risið kjallari sporöskjulagaðrar byggingar sem varðveita mun handritasafn Árnastofununar. Þar til hliðar stendur nú bílakjallari sem í fyllingu tímans mun mynda undirstöðu tjarnar, ekki ósvipuðu síkinu í kringum Þjóðarbókhlöðuna.

Framkvæmdasýsla Ríkisins áætlar að nú þegar hafi um 1500 rúmmetrar af steypu farið í kjallara aðalbyggingarinnar og bílakjallarann. Það er um fjórðungur þeirrar steypu sem fara mun í bygginguna, en undanfarið hafa að jafnaði verið um 50 manns að störfum á svæðinu. Uppsteypun heldur áfram á næstunni, þegar veður leyfir, en áætlað er að í byrjun næsta sumars verði hið minnsta fyrsta hæð af þremur risin. Áætluð verklok eru um mitt ár 2023.

Hér að neðan má sjá myndskeið sem Framkvæmdasýslan, Happdrætti Háskólans og Ístak hafa tekið saman um fyrstu stig framkvæmdanna. Ætlun þeirra er að skrásetja sögu hússins og má búast við stuttum heimildaþáttum á tveggja mánaða fresti út framkvæmdatímann. Í þessu myndskeiði er rætt við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og fyrrverandi menntamálaráðherra, Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra og Guðrúnu Nordal forstöðumann Árnastofnunar um aðkomu þeirra að byggingu hússins. 

Hús íslenskunnar rís - 1 þáttur from Karl Jonsson on Vimeo.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×