Stóri Sam hvílir Gylfa á móti stóru liðunum en ætti að skoða tölfræðina betur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2018 20:30 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki á móti Liverpool Vísir/Getty
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Everton, hefur greinilega ekki kynnt sér nógu vel tölfræði íslenska landsliðsmannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar en okkar maður er sjaldan öflugri en í leikjum á móti stóru liðunum í enska boltanum. Stóri Sam hvíldi Gylfa um helgina þegar Everton tapaði 5-1 á móti Arsenal. Þetta er annar leikurinn á stuttum tíma hjá Everton liðinu á móti einu af stóru liðum deildarinnar þar sem Gylfi fær ekkert að spila. Gylfi var heldur ekkert með Everton í 2-0 tapi á móti Manchester United á nýársdag. Þetta eru einu tveir deildarleikirnir sem Gylfa hefur misst af síðan að Sam Allardyce tók við liðinu. Markatalan í þeim er -6 eða 1-7 sem ættu nú að gefa stjóranum einhver skilaboð þegar kemur að afleiðingunum að hvíla íslenska landsliðsmanninn sem stóð sig vel í 2-1 sigri á Leicester í leiknum á undan.Gylfi skorar hér beint úr aukaspyrnu á móti Manchester United á Old Trafford.Vísir/Getty Gylfi hefur skorað 4 mörk og gefið 3 stoðsendingar á móti Chelsea á síðustu árum, hann er með 4 mörk og 1 stoðsendingu á móti Liverpool, hefur skorað 3 mörk og gefið 3 stoðsendingar í leikjum á móti Manchester United, er með 3 mörk og 1 stoðsendingu á móti Manchester City og þá hefur Gylfi boðið upp á 2 mörk og 2 stoðsendingar í leikjum á móti Arsenal. Það er helst að okkar maður hafi verið í vandræðum á móti sínum gömlu félögum í Tottenham en Gylfi er samt með 2 mörk í 8 leikjum á móti Spurs. Næsti leikur Everton á móti einu af stóru liðum deildarinnar er leikur á móti Manchester City en hann fer ekki fram fyrr en í loka mars. Þangað til mun Everton spila við liðin á hinum enda vallarins og þar er mikilvægt fyrir liðið að safna stigum.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira