97% Bandaríkjamanna segjast stoltir af þjóðerni sínu Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 4. júlí 2018 15:02 USA! USA! USA! Vísir/Getty
Aldrei hafa færri Bandaríkjamenn verið stoltir af þjóðerni sínu en nú samkvæmt nýrri könnun frá Gallup. Í fyrsta sinn segist innan við helmingur gríðarlega stoltur af því að hafa fæðst í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir það segjast aðeins 3% ekki finna fyrir neinu stolti vegna þjóðernis síns. Alls segjast 47% aðspurðra gríðarlega stoltir af því að vera bandarískir. Það er umtalsvert lægra hlutfall en svaraði sömu spurningu játandi fyrir fimmtán árum, þá sögðust 70% vera að rifna úr stolti yfir þjóðerninu.Könnunin hefur verið gerð árlega frá því árið 2001GallupAugljós aukning varð á þjóðarstolti eftir hryðjuverkaárásirnar í New York og Washington árið 2001. Sú þróun snerist við eftir að líða fór á stríðið í Írak án þess að gjöreyðingarvopn hefðu fundist. Ef teknir eru saman allir sem finna fyrir einhverju stolti vegna þjóðernis gera það um 97%. Það þýðir að aðeins 3% Bandaríkjamanna finna ekki fyrir sérstöku stolti sem slíkir. GallupSéu niðurstöðurnar greindar eftir stjórnmálaskoðunum er ljóst að fylgjendur Demókrataflokksins eru síður en svo ánægðir með gang mála eftir að Trump stjórnin tók við, stolt þeirra af Bandaríkjunum hefur hríðlækkað. Mesta stoltið mældist meðal hvítra, eldri karlmanna með litla menntun. Það er sami hópur og hallast til repúblikana. Því virðist vera öfug fylgni á milli frjálslyndis og þjóðernisstolts vestanhafs.
Mest lesið Harpa Elín Haraldsdóttir er látin Innlent „Menn eiga ekki að vera að hnýsast í gögn sem þeim koma ekki við“ Innlent Lögreglan innsiglaði Flóka Innlent Snúin staða Sönnu og sameiginlegt framboð virðist ekki í kortunum Innlent Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Erlent Stefnt að leiðtogaprófkjöri eftir áramót og kunnugleg nöfn mögulega í pottinum Innlent „Lífsgæðin mín hafa verið tekin aftur í burtu frá mér“ Innlent Ölvaður en ekki barnaníðingur Innlent Tekinn í tíunda skipti dópaður og réttindalaus Innlent Dick Cheney, einn arkítekta Íraksstríðsins, er látinn Erlent Fleiri fréttir Dick Cheney, einn arkítekta Íraksstríðsins, er látinn Með meðvitund fastur í rústunum en lést á leið á sjúkrahús Hyggjast banna klám sem sýnir kyrkingar Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Ódæðin í Súdan mögulega glæpir gegn mannkyninu Handtekin fyrir að leka myndbandi af misþyrmingu á fanga Myndar stjórn með fjarhægriflokkum Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Að minnsta kosti 20 látnir eftir stóran skjálfta í Afganistan Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Drónaumferð við herstöð í Belgíu Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Níu í lífshættu eftir stunguárásina Margir sagðir særðir eftir árás í Cambridge-skíri Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Sjá meira