Luis Enrique vill komast í enska boltann og langlíklegast er að hann taki við Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2018 07:30 Luis Enrique vann titla með Barcelona. Vísir/Getty
Orðrómurinn um að Luis Enrique sé að verða knattspyrnustjóri Chelsea í næstu framtíð verður alltaf háværari og háværari. Antonio Conte er enn stjóri Chelsea en menn eru farnir að telja niður dagana í stjóratíð hans eftir einstaklega slakt gengi liðsins að undanförnu. Framtíð Conte er ráðin að mati flestra og í raun aðeins spurning um það hvort Ítalinn klárar tímabilið eða ekki. Þriggja marka töp á móti Bournemouth og Watford hafa sett mikla pressu á breytingar í stjórastól Chelsea strax þó að Roman Abramovich vildi helst ekki breyta um stjóra fyrr en í sumar. Telegraph fjallar um málið í dag og slær því upp að Luis Enrique sé efstur á blaði hjá Chelsea. Blaðið fékk þó ekki staðfestingu á því úr herbúðum Luis Enrique að hann hafi gert munnlegt samkomulag við Chelsea en því var slegið upp í spænskum fjölmiðlum.Luis Enrique favourite to replace Antonio Conte – and Spaniard is preparing for a move to England https://t.co/K5fJjAy95H — Telegraph Football (@TeleFootball) February 8, 2018 Enrique hefur stýrt Barcelona og Celta Vigo á Spáni og Roma á Ítalíu. Það sem blaðamaður Telegraph fékk að vita er Enrique vill komast að hjá ensku félagi og fá tækifæri til að reyna sig á móti þeim Pep Guardiola og Jose Mourinho í ensku úrvalsdeildinni. Luis Enrique er án starfs eftir að hann hætti með Barcelona-liðið eftir þrjú ár. Hann er ekki spenntur fyrir því að taka við Chelsea á miðju tímabili og ekki síst vegna þess að margir af hans uppáhaldsaðstoðarmönnum eru fastir hjá Celta. Það er líka möguleiki á því að Luis Enrique endi sem eftirmaður Arsene Wenger hjá Arsenal en mestar líkur eru á því að hann fari til Chelsea. Í frétt Telegraph eru einnig vangaveltur um það að Roman Abramovich fái Guus Hiddink til að stýra Chelsea út tímabilið ákveði hann að reka Conte. Luis Enrique gæti síðan tekið við í sumar.
Enski boltinn Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Í beinni: Valur - Breiðablik | Stórleikur á Hlíðarenda Íslenski boltinn Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Sjá meira