Erlent

Fimm konur fá að bera vitni gegn Cosby

Birgir Olgeirsson skrifar
Bill Cosby er gefið að sök að hafa byrlað konu ólyfjan á heimili hans árið 2004.
Bill Cosby er gefið að sök að hafa byrlað konu ólyfjan á heimili hans árið 2004. Vísir/Getty
Dómari tilkynnti í dag að fimm konur muni bera vitni í réttarhöldum yfir Bill Cosby sem hefjast 2. apríl næstkomandi. Þar á leikarinn yfir höfði sér ásakanir um að hafa brotið kynferðislega á fyrrverandi starfsmanni Temple-háskólans í Pennsylvaníu-ríki Bandaríkjanna. Sakar konan Cosby um að hafa byrlað henni ólyfjan og nauðgað henni á heimili Cosby í Philadelphiu árið 2004.

Dómarinn sagði að saksóknarar fengju leyfi til að kalla til fimm konur sem vitni við réttarhöldin. Saksóknararnir höfðu vonast til að geta kallað nítján konur til sem vitni. Á vef Vulture kemur fram að ekki liggi fyrir hvaða konur muni bera vitni.

Verjendur Cosby höfðu farið fram á við dómarann að hann myndi vísa málinu frá. Þegar það gekk ekki brugðu verjendurnir á það ráð að mótmæla þeirri beiðni saksóknara að kalla til vitnis aðrar konur sem höfðu sakað Cosby um kynferðisbrot. Báru verjendurnir því við að mál þeirra kvenna væru fyrnd og hefðu því ekkert erindi í þessu máli.

Þetta eru önnur réttarhöldin yfir Cosby vegna ásakana um kynferðisbrot gegn konum. Í fyrra var réttað í máli gegn honum sem lauk eftir að kviðdómurinn komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu og var sendur á brott.

Fyrirsætan fyrrverandi Janice Dickinson er á meðal þeirra fjölda kvenna sem hafa sakað Cosby um kynferðisbrot. Hún hefur höfðað meiðyrðamál á hendur Cosby eftir að leikarinn hafði kallað hana lygara.

Dickinson sakaði Cosby um að hafa byrlað henni ólyfjan og nauðgað henni árið 1982. Cosby og lögmenn hans sökuðu hana um lygar eftir að hún hafði stigið fram með þessar ásakanir. Dickinson höfðaði meiðyrðamál gegn Cosby og fór fram á við dómstól í Kaliforníu-ríki að hún mætti leggja fram tilkynningu frá Cosby og lögmönnum hans, þar sem hún var kölluð lygari, máli sínu til sönnunar.

Dómurinn féllst á þá beiðni en Cosby áfrýjaði þeirri ákvörðun til hæstaréttar í Kaliforníu-ríki. Hæstirétturinn vísaði áfrýjun Cosby frá í dag og fær því Dickinson að leggja þessi gögn fram. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×