Innlent

María Helga endurkjörin formaður Samtakanna '78

Kristín Ólafsdóttir skrifar
María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna ´78.
María Helga Guðmundsdóttir, formaður Samtakanna ´78. Vísir/Anton Brink
Aðalfundur Samtakanna 78 var haldinn í húsakynnum samtakanna að Suðurgötu 3 á sunnudag. Á fundinum lágu fyrir hefðbundin aðalfundarstörf og meðal annars kjör formanns, stjórnar og trúnaðarráðs.

María Helga Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður Samtakanna ’78 með öllum greiddum atkvæðum. Kosið var í stjórn samtakanna til tveggja ára og voru þau Rúnar Þórir Ingólfsson, Unnsteinn Jóhannsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir kjörin. Einnig var kosið til stjórnar til eins árs og hlutu Marion Lerner, Sigurður Júlíus Guðmundsson og Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir kjör.

María Helga formaður hélt ræðu á aðalfundinum og nefndi þar hin mörgu baráttumál sem samtökin hafa beitt sér fyrir á árinu. Þá minntist hún Guðna Baldurssonar, fyrsta formanns Samtakanna 78 sem lést í sumar.

María Helga minntist þó einnig á að þó að Íslendingar hefðu unnið stóra sigra í málum hinsegin fólks væri enn langt í land.

„En um leið og við gleðjumst yfir árangri í baráttunni er margt sem minnir okkur á að halda baráttunni áfram. Líkamsárás á homma í miðborg Reykjavíkur og hatursfull ummæli á samfélagsmiðlum sem leggja hinsegin fræðslu og barnaníð að jöfnu minna okkur á að fordómar og hatur þrífast allt of víða í samfélaginu,“ sagði María Helga.

„Og þótt meðvitund og viðurkenning á trans og intersex fólki fari vaxandi í íslensku samfélagi eru nauðsynlegar réttarbætur fyrir þessa hópa enn ekki í höfn. Sterk hagsmunasamtök leika lykilhlutverk í því að takast á við þessi vandamál.“

Samtökin 78 fagna 40 ára afmæli þann 9. maí næstkomandi. Hér má nálgast starfsskýrslu samtakanna fyrir veturinn 2017-2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×