Enski boltinn

Liverpool búið að ná í Fabinho

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Fabinho er kominn til Englands
Fabinho er kominn til Englands mynd/liverpool
Liverpool hefur gengið frá kaupum á brasilíska miðjumanninum Fabinho en hann mun ganga til liðs við liðið þegar félagaskiptaglugginn opnar 1. júlí.

Fabinho kemur frá Mónakó en hann spilaði 225 leiki fyrir félagið á fimm árum og skoraði í þeim 29 mörk.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu. Þegar svona stórt lið kemur kallandi þá þurfti ég ekki að hugsa mig um lengi,“ sagði Fabinho við heimasíðu Liverpool.

Brasilíumaðurinn er fyrsti nýi leikmaðurinn sem Liverpool semur við í sumar, en Naby Keita mun einnig ganga til liðs við félagið 1. júlí.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×