Frumskógar-Jabbah dæmdur í 30 ára fangelsi Ingvar Þór Björnsson skrifar 20. apríl 2018 22:21 Eitt vitnanna í málinu sagði að Jabbah hafi fyrirskipað að hjarta fanga hópsins yrði eldað fyrir stríðsmenn sína. Vísir/Getty
Líberíski stríðsherrann „Frumskógar-Jabbah“ var í dag dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar af bandarískum dómstól fyrir að greina ekki rétt frá aðkomu sinni að borgarastríðinu í Líberíu. BBC greinir frá. Mohammed Jabbetah var sakfelldur fyrir svindl á innflytjendalögum og fyrir að fullyrða ranglega við bandarísk yfirvöld að hann hafi ekki tilheyrt neinni stríðandi fylkingu í stríðinu. Komið hefur í ljós að Jabbah hafi verið yfirmaður tveggja hersveita. Hann flutti til Bandaríkjanna á tíunda áratug síðustu aldar en hann var handtekinn í apríl árið 2016. Eitt vitnanna í málinu sagði að Jabbah hafi látið elda hjarta úr fanga fyrir stríðsmenn sína. Þá komu vitni frá Líberíu til Bandaríkjanna til að bera vitni um ásakanir um morð, nauðganir, limlestingar og mannát sem hann á að hafa stundað sjálfur og menn sem voru undir hans stjórn. Amnesty International hefur fagnað niðurstöðu dómsins og kallað hann „fyrsta skrefið í átt að réttlæti fyrir fórnarlömb líberíska borgarastríðsins.“ Benda þau þó á að hann hafi ekki verið dæmdur fyrir stríðsglæpi sína. „Það má ekki gleyma því að enginn hefur þurft að taka ábyrgð á stríðsglæpunum í Líberíu,“ segir Sabrina Mahtani, svæðisstjóri Amnesty í Vestur-Afríku. „Líberísk yfirvöld verða að koma á fót stríðsdómstól til að láta þá sem eru sekir axla ábyrgð,“ segir hún. Um 250.000 manns létu lífið í borgarastríði landsins sem stóð yfir í fjórtán ár.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira