Messan: Þetta þarf Liverpool að gera til að vinna Englandsmeistaratitilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 11:00
Liverpool er fimmtán stigum á eftir Manchester City (1. sæti) og tveimur stigum á eftir Manchester United (2. sæti). Hvað þarf að gerast til að Liverpool geti unnið enska meistaratitilinn sem hefur ekki komið á Anfield í 28 ár. Strákarnir í Messunni hafa sína skoðun á því. „Hvað þarf Liverpool að gera til þess að geta barist um Englandsmeistaratitilinn? Hvað vantar?,“ spurði Ríkharð Guðnason þegar hann hóf umræðuna um framtíð Liverpool-liðsins í Messunni. „Ég hef einhvern tímann sagt það að mér fannst þeim vanta miðvörð, markvörð og kannski einn öflugan varnartengilið. Þeir eru búnir að fá sér einn miðvörð en það er ekkert rosalega mikið sem vantar. Það er klárlega markvörður sem vantar til þess að þeir geti tekið næsta skref,“ sagði Reynir Leósson og nefnir til Manchester City. „Það er það sem Pep Guardiola gerði hjá City. Hann var ekki með nógu góðan markvörð og fór bara og keypti sér einn betri,“ sagði Reynir og er þá að tala um Brasilíumaninn Ederson sem kom frá Benfica. „Það er ekki mikið sem vantar þegar liðið hefur verið að spila eins vel og það hefur verið að gera á tiltölulega löngu tímabili,“ sagði Reynir. „Það sem þeir þurfa að gera er að klára þetta tímabil af krafti og komast í Meistaradeildina sem skiptir gríðarlega miklu máli. Þeir þurfa að reyna að byggja ofan á það. Þeim veitti ekki að því að ná sér í annan miðvörð, svona heimsklassa miðvörð, því þú þarft tvo til þrjá góða miðverði til að geta farið að berjast um enska meistaratitilinn. Og svo alvöru markmann. Þar er alltaf grunnurinn því þeir þurfa styrkja sig þar en eru alveg nógu góðir fram á við og munu sjálfsagt verða þar áfram,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson. Það má sjá þessa umfjöllun sem og umræðu um möguleika Liverpool á að vinna Meistaradeildina í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Langar að biðja Stólana afsökunar á því sem ég lét út úr mér í síðustu umferð“ Körfubolti Arfleifð Cool Runnings lifir áfram á Ólympíuleikunum Sport Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Uppgjörið: Keflavík - Ármann 93-102 | Ármenningar unnu í Keflavík Körfubolti „Mig kitlar svakalega í puttana“ Handbolti „Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ Körfubolti Danir svöruðu fyrir Portúgalstapið og unnu Evrópumeistarana Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira