Messan: Varnarmenn andstæðinga Liverpool eru alltaf skíthræddir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2018 09:30
Liverpool vann 4-1 sigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og er komið upp í þriðja sæti deildarinnar. Strákarnir í Messunni segja að ekkert lið sé að spila betur í enska boltanum í dag fyrir utan topplið Manchester City. „Fyrir utan Manchester City er ekki Liverpool bara með besta liðið um þessar myndir,“ spurði Ríkharð Guðnason þegar hann hóf umræðuna um Liverpool-liðið í Messunni. „Jú, formið þeirra sýnir það. Þeir eru á fleygiferð og voru líka á fleygiferð í Meistaradeildinni þar sem þeir náðu stórkostlegum úrslitum. Það er gaman að horfa á Liverpool-liðið og þeir eru líka að fá á sig færri mörk núna. Það eru allar sendingar fram á við. Boltanum er alltaf spilað með einhverjum tilgangi og þeim tilgangi að komast í einhverja sóknarstöðu,“ sagði Reynir Leósson. „Það er þvílíkur fyrir menn sem vinna boltann að sjá hversu mikið af hlaupum er alltaf í boði. Varnarmenn andstæðinga Liverpool eru alltaf skíthræddir við hraðann hjá leikmönnum Liverpool. Grunnurinn að þessum sigri var líka að þeir eru farnir að verjast mikið betur en þeir gerðu og Van Dijk á stóran þátt í því,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson. „Það virðist vera þannig með Jürgen Klopp að hann gerir alla leikmenn betri sem hann hefur keypt í Liverpool. Er það rétt?,“ spurði Ríkharð Guðnason. „Það er ekkert langt frá því og það finnst mér sammerkt með þessum bestu stjórum. Mér finnst allir leikmenn vera betri hjá City en þeir voru fyrir Guardiola. Mér finnst líka flestir leikmenn Liverpool vera búnir að taka skref fram á við eftir að Klopp tók við,“ sagði Reynir. Jóhannes Karl Guðjónsson hafði líka skoðun á því af hverju sóknarleikur Liverpool hefur batnað eftir að liðið seldi Philippo Coutinho til Barcelona. Það má finna umfjöllunina um Liverpool í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira