Kane hyggst nýta meðbyrinn frá HM til að aflétta ágústbölvuninni Arnar Geir Halldórsson skrifar 16. júlí 2018 12:30 Harry Kane. vísir/getty
Harry Kane stimplaði sig endanlega inn sem einn allra öflugasti markaskorari heims með því að hreppa gullskóinn á HM í Rússlandi en hann skoraði sex mörk í keppninni og var markahæstur allra. Kane hefur raðað inn mörkum fyrir Tottenham Hotspurs undanfarin ár og hélt uppteknum hætti í Rússlandi þar sem hann bar einnig fyrirliðaband Englands sem hafnaði í 4.sæti á mótinu. Nú tekur við kærkomið sumarfrí hjá Kane og öðrum leikmönnum sem voru á HM en það mun líklega ekki vara lengi þar sem það styttist óðum í að flautað verði til leiks í ensku úrvalsdeildinni. Kane er strax farinn að leiða hugann að næstu leiktíð með Spurs og er staðráðinn í að aflétta ágústbölvun sinni en þó kappinn hafi verið á meðal markahæstu leikmanna úrvalsdeildarinnar undanfarin tímabil hefur honum aldrei tekist að skora í ágústmánuði. „Ég vona að ég verði tilbúinn í fyrsta leik og vonandi tekst mér að skora í ágústmánuði þetta árið,“ segir Kane. „Það eru ekki margir sem geta sagt að þeir eigi gullskó frá Heimsmeistarakeppninni. Þetta er stórt afrek. Ég sagði fyrir keppnina að ég myndi vilja sanna mig á svona stóru sviði.“ Kane leiddi sóknarlínu Englands á EM í Frakklandi árið 2016 og tókst ekki að skora mark í keppninni. „EM var vonbrigði fyrir mig og ég vildi sýna öllum að ég gæti skorað í lokakeppni stórmóts. Ég hef skorað á öllum öðrum stigum leiksins og það var mikilvægt að ná þessum áfanga. Ég er mjög stoltur og það mun taka einhvern tíma að átta sig almennilega á þessu,“ segir Kane um markakóngstitilinn á HM. Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst föstudaginn 10.ágúst næstkomandi með leik Man Utd og Leicester. Kane og félagar í Tottenham byrja mótið á útivelli gegn Newcastle í hádegisleik laugardaginn 11.ágúst.
Enski boltinn Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjá meira