Vara Assad við beitingu efnavopna Samúel Karl Ólason skrifar 27. júní 2017 06:41 Bashar al-Assad, forseti Sýrlands. Vísir/AFP
Hvíta húsið hefur varað Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, við því að beita efnavopnum aftur í Sýrlandi. Bandaríkin segjast búa yfir upplýsingum um að mögulega sé verið að skipuleggja aðra notkun slíkra vopna gegn almennum borgurum í Sýrlandi og að slíkar aðgerðir myndu hafa alvarlegar afleiðingar.Samkvæmt AP fréttaveitunni sagði Sean Spicer, talsmaður Hvíta hússins, að Bandaríkin hefðu komist á snoðir um að undirbúningur aðgerðarinnar svipaði til þess þegar Assad-liðar beittu saríngasi gegn borgurum í bænum Khan Sheikhoun í apríl. Sú árás varð til þess að Bandaríkin skutu 59 eldflaugum að flugvelli stjórnarhers Sýrlands. Bandaríkin sögðu að flugvélinni sem notuð var til árásarinnar hefði verið flogið þaðan. „Eins og fyrir liggur eru Bandaríkin í Sýrlandi til að ganga frá Íslamska ríkinu, en hins vegar, ef herra Assad fremur annað fjöldamorð með efnavopnum, mun hann og her hans gjalda hátt verð,“ sagði Sean Spicer samkvæmt Washington Post. Spicer veitti ekki frekari upplýsingar, en samkvæmt heimildum AP innan öryggisstofnanna Bandaríkjanna kom yfirlýsingin þeim í opna skjöldu. Hins vegar segir einn heimildarmaður fréttaveitunnar að upplýsingar hafi borist um að stjórnarherinn væri að blanda efnavopn fyrir árás.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira