Hjartnæmt bréf Ronaldinho: Farðu þína eigin leið og vertu frjáls Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2017 08:30 Ronaldinho var oftar en ekki brosandi inni á vellinum, enda segir hann sjálfur að fótboltinn eigi að vera skemmtilegur. Vísir/Getty „
Elsku átta ára Ronaldinho.“ Þannig hefst bréf sem knattspyrnumaðurinn Ronaldinho skrifaði til sín og birti á heimasíðu The Players Tribune í gær. Í bréfinu gerir hann upp sinn magnaða knattspyrnuferil og lítur til baka yfir stórviðburði í hans lífi. Það hefst með upprifjun á deginum þegar faðir hans lést. Ronaldinho var átta ára gamall. Faðir hans fékk hjartaáfall og lést á heimili fjölskyldunnar. Ronaldinho segir að hann hafi verið sá sem hvatti hann til að vera skapandi með fótboltann inni á vellinum og að spila frjálslega. „Hann hafði meiri trú á þér en nokkur annar,“ skrifaði Ronaldinho. Bróðir Ronaldinho, Roberto, gekk honum í föðurstað en hann var þá átján ára og byrjaður að spila með Gremio, knattspyrnufélaginu í heimabænum Porto Alegre. „Þú ert heppinn því þú hefur Roberto. Þó svo að hann sé tíu árum eldri þá er hann byrjaður að spila fyrir Gremo. Roberto verður ávallt til staðar fyrir þig. Hann verður ekki bara bróðir, heldur eins og faðir fyrir þig. Og umfram allt, verður hann hetjan þín.“ Óhætt er að segja að lesningin sé mögnuð. Ronaldinho rifjar upp þegar Brasilía varð heimsmeistari á HM 1994 í Bandaríkjunum og hvaða áhrif það hafði á hann. Ronaldoinho segir einnig frá því þegar hann var valinn í U-17 lið Brasilíu og síðar A-landslið Brasilíu. Þegar hann fór til Evrópu, samdi við PSG í Frakklandi og síðar Barcelona þar sem hann kom auga á Lionel Messi, ungan leikmann sem lék sér með boltann inni á vellinum líkt og hann hafði sjálfur gert. „Eina ráðið sem ég gef þér er þetta: Gerðu þetta á þinn eigin hátt. Vertu frjáls. Heyrðu í tónlistinni. Það er eina leiðin fyrir þig að lifa lífinu.“Lestu bréfið hér.
Fótbolti Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Sjá meira