Nigel Pearson tekur við gömlu Íslendingaliði í Belgíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2017 14:30 Nigel Pearson. Vísir/Getty
Nigel Pearson, fyrrum knattspyrnustjóri Leicester City, hefur fundið sér nýtt lið en það er ekki í Englandi og ekki í efstu deild. Fyrsta starf Nigel Pearson utan enska boltans verður þjálfarastaðan hjá belgíska b-deildarliðinu Oud-Heverlee Leuven. BBC segir frá. Oud-Heverlee Leuven er gamalt Íslendingalið en Stefán Gíslason spilaði með liðinu í þrjú tímabil frá 2011/12 til 2013/14 en liðið var þá í efstu deild. Þetta voru síðustu ár Stefáns í atvinnumennsku. Pearson hefur samt unnið fyrir sömu eigendur áður því King Power International, eigendur Leicester City, eiga einnig þetta belgíska félag. Nigel Pearson bjargaði Leicester-liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2014-15en Ítalinn Claudio Ranieri fékk svo starfið hans um sumarið og gerði Leicester að enskum meisturum 2016. Eigendurnir ráku Nigel Pearson sumarið 2015 þrátt fyrir að hann hafi bjargað liðinu frá falli með mögnuðum endaspretti en leiðir þeirra liggja nú aftur saman. Pearson hefur ekki fengið mikið að gera síðan að hann var rekinn frá Leicester því frá þeim tíma hefur hann aðeins stýrt Derby County í fjórtán leikjum sem voru frá maí til október 2016. Nigel Pearson tekur við liði Oud-Heverlee Leuven í fjórða sæti í belgísku B-deildinni af átta liðum. Liðið hefur aðeins unnið 2 af fyrstu 6 leikjum sínum á tímabilinu. Hann tekur við af Dennis van Wijk sem hafði stýrt Oud-Heverlee Leuven frá því í janúar.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira