Úr bílaverskmiðju til Arsenal Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2017 08:15 Cohen Bramall með Arsene Wenger við undirritun samningsins. Vísir/Getty
Hinn tvítugi Cohen Bramall er genginn til liðs við enska stórliðið Arsenal en saga hans er ólíkari flestum öðrum leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar. Bramall æfði með Arsneal í síðustu viku og gerði nóg til að fá samning. Hann mun nú æfa og spila með U-23 liði félagsins. Hann er vinstri bakvörður og spilaði síðast með Hednesford í utandeildinni. Hann þurfti að vinna með fótboltanum og starfaði í bílaverksmiðju fyrir Bentley, þar sem honum var reyndar sagt upp vegna niðurskurðar í síðasta mánuði. „Þegar mér var sagt upp þá vissi ég ekki hvað ég átti að fara að gera,“ sagði hann í samtali við BBC. „Umboðsmaðurinn minn, Lee Payne, hringir í mig næsta dag og segir að ég megi æfa til reynslu hjá Arsenal. Ég var steinhissa,“ sagði hann enn fremur. Hann var fljótur að pakka í ferðatösku og koma sér á réttan stað. Skyndilega var hann mættur á æfingu með aðalliði Arsenal. „Það er algjör bilun hversu hratt þetta gekk allt fyrir sig. Ég hitti alla og þeir tóku mér strax. Ég varð að grípa þetta tækifæri báðum höndum.“ Önnur lið, Crystal Palace og Sheffield Wednesday, höfðu verið að fylgjast með Bramall en Arsenal var eina liðið sem komst að samkomulagi við hans gamla félag um félagskipti. Arsenal greiddi Hednesford 5,6 milljónir króna fyrir kappann. „Bramall er ungur og afar efnilegur vinstri bakvörður sem skortir að vísu reynslu en hefur margt til brunns að bera,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal. „Hann er afar hraður, góðan vinstri fót og mikinn vilja til að standa sig vel. Hann er spennandi leikmaður.“
Enski boltinn Mest lesið „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Ensk stórlið, Stólar í Garðabæ og Besta deild kvenna Sport „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Bellerín braut hjörtu Madrídinga Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Flest mörk í 67 ár Uppgjörið : Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Furða sig á tveggja leikja fyrirkomulaginu í Evrópubikarnum Ranieri tapaði rifrildinu við þjálfarann í Róm Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Skítsama hvort Mbappé líki við Mourinho eða Juliu Roberts Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Sjá meira