Stelpan sem á möguleika á að vinna fleiri FIFA-verðlaun í kvöld en þeir Messi og Ronaldo Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2017 12:30 Deyna Castellanos. Vísir/Getty
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, heldur verðlaunahátíð sína í í kvöld en þá fær besta knattspyrnufólk ársins verðlaun sín afhent í Palladium leikhúsinu í London. Það þarf ekki að koma mikið á óvart að þeir Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og Neymar séu tilnefndir sem bestu knattspyrnumenn heims á þessu ári en tilnefning í kvennaflokknum var óvænt. Þar er átján ára stelpa frá Venesúela, Deyna Castellanos, tilnefnd sem knattspyrnukona ársins ásamt þeim Lieke Martens frá Hollandi og Carli Lloyd frá Bandaríkjunum. Hollendingurinn Lieke Martens hefur fengið samskonar verðlaun frá Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, og er sigurstranglegust. Það bjuggust aftur á móti fáir við að sjá nafn Deynu Castellanos hvað þá sjá hana ganga eftir rauða dreglinum ásamt þeim Cristiano Ronaldo og Lionel Messi sem og að sitja við hlið þeirra í fremstu röð á hátíðinni í kvöld. Hún var lítt þekkt þegar FIFA gaf út fyrstu tilnefningar sínar til verðlauna ársins 2017.Having been overjoyed at being nominated as one of #TheBest, will @deynac18's Monday top even that? pic.twitter.com/szvRsfqksq — #TheBest (@FIFAcom) October 22, 2017 Ólíkt Lionel Messi og Cristiano Ronaldo þá getur Deyna Castellanos unnið fleiri en ein verðlaun í kvöld. Mark hennar kemur nefnilega líka til greina sem besta mark ársins. Hún er þar tilnefnd fyrir mark sem hún skoraði fyrir 17 ára landslið Venesúela á HM U-17. BBC hefur tekið saman skemmtilega grein um Deynu Castellanos og hana má finna hér. Þar er sagt frá því að það voru ekki allir ánægðir með tilnefningu hennar og sérstaklega þótti nokkrum Áströlum brotið á samlanda sínum Sam Kerr. Nú síðast gagnrýndi bandaríska landsliðskonan Megan Rapinoe tilnefninguna harðlega sem hún taldi sönnun þess að FIFA hafi engan áhuga á kvennafótbolta. Think #DeynaCastellanos deserves the Puskas Award? Read more https://t.co/VGZXpEy5QF Vote here https://t.co/zd4g8FvFm9pic.twitter.com/zSB9p2pnSM — #TheBest (@FIFAcom) October 20, 2017 Castellanos er ekki orðin atvinnumaður ennþá. Hún er bara átján gömul og stundar nám við Florida State háskólann um leið og hún spilar með knattspyrnuliði skólans þar sem hún hefur skorað 14 mörk í 15 leikjum á þessu tímabili. Deyna Castellanos er efni í stórstjörnu, létt og skemmtileg í samskiptum við bæði aðdáendur og fjölmiðla, og sannkölluð tilþrifadrottning inn á vellinum þar sem hún hefur skorað mörg frábær mörk á síðastliðnu ári. Kannski má deila á það að þessi tilnefning hafi komið aðeins of snemma en það efast fáir um það að hún gæti verið fastagestur á topplistanum næstu árum.Who's #TheBest in water bottle flipping: #DeynaCastellanos or Celia Sasic? pic.twitter.com/mTVKR28ED7 — #FIFAWWC (@FIFAWWC) October 22, 2017 Who better to reveal the real #DeynaCastellanos than her team/room-mate! Enter Gloriana Villaloboshttps://t.co/6kYVvJM74kpic.twitter.com/iOzAcpKAzY — #TheBest (@FIFAcom) October 22, 2017
Fótbolti Mest lesið Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Verstappen tikkar af golulistanum Formúla 1 Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni Enski boltinn Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Fleiri fréttir Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni HM-leikir í Boston í uppnámi City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Draumabyrjun en matraðarendir hjá Victori í Íslendingaslag Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fékk rúmlega þrettán milljóna króna sekt fyrir ummæli um dómara Endurheimta Haaland fyrir Real-rimmuna Vilja fresta og freista þess að komast á HM viku fyrir mót Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Tuttuguogþrír leikmenn reknir út eftir slagsmál Svífa um í draumalandi eftir dvöl stelpnanna okkar Segir einn mann hafa stöðvað heimkomu Messi Níu lið enn í mínus eftir fyrstu umferð Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Villisvínin eyðilögðu fótboltavöllinn Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu AC Milan hélt smá lífi í titilbaráttunni Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Bæði lögreglumenn og stuðningsmenn slösuðust í látunum eftir leik Stuðningsmaður tók VAR úr sambandi Elías Rafn og félagar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum Leeds í átta liða úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 2003 Hákon sestur á bekkinn þegar Lille fékk á sig jöfnunarmark Siggi Raggi byrjaði á sigri í Færeyjum Kolbeinn skoraði beint úr aukaspyrnu í bikarsigri Sjá meira