Rúnar Alex stóð í marki Nordsjælland í stórsigri á FCK | Úrslit úr leikjum dagsins í Danmörku Elías Orri Njarðarson skrifar 27. ágúst 2017 18:00 Rúnar Alex hélt marki sínu hreinu í dag visir/getty
Þremur leikjum er nú lokið í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.FC Midtjylland - Lyngby 1-1 FC Midtjylland og Lyngby gerðu 1-1 jafntefli á heimavelli Midtjylland í dag. Hallgrímu Jónasson byrjaði á varamannabekk Lyngby en kom inn á á 44. mínútu. Heimamenn í FC Midtjylland komust yfir í leiknum á 35. mínútu og stefndi allt í sigur FC Midtjylland en David Boysen jafnaði metin fyrir Lyngby á 90. mínútu og skiptu því liðin með sér stigunum.Bröndby - AC Horsens 2-0 Hjörtur Hermannsson spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Bröndby. Kjartan Henry Finnbogason spilaði einnig allan leikinn fyrir Horsens en tókst ekki að skora í leiknum. Johann Larsson kom heimamönnum í Bröndby yfir í leiknum á 61. mínútu. Allt stefndi í eins marks sigur Bröndby en á 90. mínútu fengu Bröndby-menn vítaspyrnu sem Kamil Wilczek tók, en hann lét Jesse Joronen, markvörð Horsens, verja frá sér. Jan Kliment var hinsvegar fyrstur að átta sig á málunum og potaði boltanum yfir marklínuna og skoraði annað mark Bröndby í leiknum og þar við sat.FC Nordsjælland - FC Köbenhavn 3-0 FC Nordsjælland sigraði FC Köbenhavn 3-0 í dag. Rúnar Alex Rúnarsson stóð allan tímann í marki Nordsjælland. Godsway Donyoh kom Nordsjælland yfir á 27. mínútu og sex mínútum síðar bætti Emiliano Marcondes öðru marki Nordsjælland við. Peter Ankersen fékk beint rautt spjald á 57. mínútu og því róðurinn þungur fyrir FCK. Á 83. mínútu skoraði svo Ernest Asante þriðja mark Nordsjælland í leiknum og öruggur 3-0 sigur Nordsjælland var í höfn.
Fótbolti Mest lesið Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Fótbolti Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Fótbolti Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Fótbolti Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Fótbolti Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Fótbolti Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Fótbolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Fleiri fréttir Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Sjáðu ótrúlega þrennu Valverde í fyrri hálfleik Thelma skoraði og Fanney hélt hreinu í bikarsigri Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Segja að Tudor stýri Tottenham á móti Liverpool Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Hætti við að sækja um hæli og fór frekar heim til Írans „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Scholes bað Carrick afsökunar „Þær eru öruggar hér og þeim ætti að líða vel“ „Sorgmæddur en stoltur“ Fleury fór á kostum gegn FH Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir? Bæjarar gengu frá Atalanta Flautumark kramdi drauma norðursins um sigur gegn Börsungum Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Sjá meira