Ástralía vann 6-1 sigur á Brasilíu í fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2017 10:30 Samantha Kerr skorar og tryggir sér markaskóngstitilinn á mótinu. Vísir/Getty
Það er ekki bara verið að keppa á Evrópumóti kvenna í fótbolta þessa dagana því í nótt kláraðist einnig fyrsta Tournament of Nations í Bandaríkjunum en það er mót milli bestu knattspyrnulandsliða kvenna utan Evrópu. Ástralska kvennalandsliðið tryggði sér sigur á mótinu með eftirminnilegum 6-1 sigri á Brasilíu í lokaleiknum en í mótinu tóku einnig þátt Bandaríkin og Japan. Allar þessar fjórar þjóðir eru meðal sjö hæstu á styrkleikalista FIFA. Lisa de Vanna og Caitlin Foord skoruðu báðar tvennu fyrir ástralska liðið í þessum stórsigri á Brasilíu en hin mörkin skoruðu þær Katrina Gorry og Samantha Kerr. Þetta var stærsta tap brasilíska landsliðsins á þessari öld eða síðan að liðið tapaði 6-0 fyrir Bandaríkjunum árið 1999. Það dugði ekki brasilíska landsliðinu að komast yfir með marki Camilu í upphafi leiks því þær áströlsku jöfnuðu fljótlega og keyrðu síðan yfir Brassana. Ástralía fékk fullt hús stiga á mótinu en liðið vann 1-0 sigur á Bandaríkjunum í fyrsta leik, þá 4-2 sigur á Japan og loks 6-1 sigur á Brasilíu. Bandaríska landsliðið tryggði sér annað sætið með 3-0 sigri á Japan í hinum leik dagsins. Ástralinn Samantha Kerr skoraði eitt mark í nótt og var þar með markahæst á mótinu en hún skoraði þrennu í sigri Ástrala á Japan.
Fótbolti Mest lesið Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Davíð Tómas segir flautukörfu Hilmars Smára löglega: „Ekki skref“ Körfubolti Fékk rautt fyrir að rífa í hár mótherja: „Þetta er alveg galið“ Íslenski boltinn Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Körfubolti Fyrstur til að hlaupa maraþon á undir tveimur klukkustundum Sport Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Fótbolti Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods Golf Sjáðu ótrúlega flautukörfu Hilmars Smára í framlengingu gegn Tindastól Körfubolti Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Enski boltinn Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Handbolti Fleiri fréttir Hákon á sínum stað er Lille vann mikilvægan sigur Olivia Smith tryggði Arsenal dramatískan sigur Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Fékk rautt fyrir að rífa í hár mótherja: „Þetta er alveg galið“ Orri skoraði en bikarmeistararnir köstuðu frá sér sigrinum Albert áberandi í sóknarleik Fiorentina en mörkin komu ekki Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Uppgjörið: Valur 2-1 Grindavík/Njarðvík | Ísabella Sara hetja Valskvenna Uppgjörið: Þór/KA 1-1 FH | Dramatískt jöfnunarmark og töpuð stig Jón Dagur þaggaði niður í gagnrýnendnum með mögnuðu marki Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Birta skoraði en mátti þola tap í Íslendingaslag HK byrjar á sigri Börsungar að stinga af Þriðji sigur Liverpool í röð Draumabyrjun Þróttara en jafnt fyrir vestan Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fanney hélt hreinu og Häcken vann fyrri úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - ÍBV 3-4 | Nýliðarnir unnu í sjö marka leik Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa „Er ekki að sjá þennan orkumikla bolta sem manni var lofað“ Lést í miðjum leik Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Sjá meira