Rúnar Már spilaði allan leikinn í öðru tapi Grasshopper í röð Elías Orri Njarðarson skrifar 29. júlí 2017 19:27 Rúnar Már á ferðinni í leik með Grasshopper visir/epa
Rúnar Már Sigurjónsson spilaði allan leikinn í 0-4 tapi gegn Young Boys í úrvalsdeildinni í Sviss í dag. Lið Grasshopper var í 10. sæti fyrir leikinn með 0 stig, eftir óvænt 2-0 tap gegn nýliðum FC Zurich í fyrstu umferðinni í deildinni. Young Boys sátu á toppi deildarinnar fyrir leikinn eftir 2-0 sigur í fyrsta leik gegn Basel. Það dró strax til tíðinda þegar að 15 mínútur voru liðnar af leiknum en þá kom Christian Fassnacht gestunum í Young Boys yfir í leiknum. Heimamenn í Grasshopper voru meira með boltann í leiknum en náðu ekki að skapa sér mikið af færum. Þegar blásið var til loka fyrri hálfleiks var staðan enn 0-1 fyrir gestina í Young Boys. Eftir um 20 mínútna leik í síðari hálfleik varð Milan Vilotic, varnarmaður Grasshopper, fyrir því óhappi að skora sjálfsmark og Young Boys komnir með gott forskot. Á 71. mínútu skoraði svo Jean Pierre Nsame þriðja mark Young Boys og útlitið orðið mjög slæmt fyrir Rúnar Má og félaga. Það var varla ein mínúta liðin þar til að Christian Fassnacht skoraði annað mark sitt í leiknum og fjórða mark Young Boys. Fleiri voru mörkin ekki og annað tap Grasshopper í röð staðreynd. Rúnar og félagar verma botnsætið í deildinni eftir tvo leiki í deildinni en Young Boys situr þæginlega á toppnum eftir góðan sigur.
Fótbolti Mest lesið Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Körfubolti Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Enski boltinn Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn „Frábært að fá Martin aftur“ Körfubolti „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Körfubolti Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Fleiri fréttir Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Skilur eftir minningar alveg eins og leikurinn Þórir til nýliða í ítölsku úrvalsdeildinni Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Kane bjargaði enskum Slæmur skellur gegn Spáni en mun betri seinni hálfleikur „Ég er farinn“ Ungstirnið í Breiðablik keypt til Danmerkur Rooney vill að Mainoo byrji hjá Englandi frekar en Anderson Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Maður dagsins á HM: Hetja Mexíkó á HM sem fæddist í Kólumbíu Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Ólýsanleg sorg fyrirliðans Verður áfram í Þýskalandi Koeman hættir með Holland Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Sjá meira