648 brautskráðust frá Háskólanum í Reykjavík Atli Ísleifsson skrifar 17. júní 2017 17:17 Um 3.600 nemendur stunduðu nám við skólann á síðasta skólaári. Vísir/ernir
648 nemendur brautskráðust frá Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Aldrei hafa fleiri brautskráðst frá skólanum. Í tilkynningu frá skólanum segir að 417 nemendur hafi verið brautskráðir úr grunnnámi, 229 úr meistaranámi og tveir nemendur útskrifuðust með doktorsgráðu. Í útskriftarhópnum voru 273 konur og 375 karlar, en um 3.600 nemendur stunduðu nám við skólann á síðasta skólaári. „Flestir luku námi frá frá viðskiptadeild háskólans, eða 229 nemendur, þar af rúmur helmingur, eða 117 með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu. Frá tækni- og verkfræðideild háskólans útskrifuðust 199 nemendur, þar af 70 með meistaragráðu og einn með doktorsgráðu. Lagadeild útskrifaði 71 nemanda, þar af 32 með meistaragráðu. Tölvunarfræðideild útskrifaði 149 nemendur, þar af 10 með meistaragráðu. Í ávarpi sínu til útskriftarnema talaði Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, meðal annars um yfirstandandi tæknibyltingu sem muni gerbylta störfum, framleiðslu, þjónustu, viðskiptum og samfélagi með aukinni sjálfvirkni, gervigreind og sýndarveruleika. „Allt að helmingur þeirra starfa sem við þekkjum hér á landi í dag mun hverfa á næstu áratugum. Ef við erum ekki vel undirbúin, ef við erum ekki eins vel menntuð og nágrannalöndin, þá verðum við undir í samkeppninni,“ sagði Ari meðal annars í ræðu sinni. Hann bætti við að engir væru betri en Íslendingar í að snúa blaðinu við á skömmum tíma og að það lægi skýrt fyrir hvað þyrfti að gera til að efla háskólastarf og bæta umhverfi fyrir nýsköpun. „Takist okkur að gera það fljótt og vel, þá mun samkeppnishæfni Íslands stóreflast og samfélag okkar njóta aukinna lífsgæða. Og það sem skiptir jafn vel enn meira máli, frábærir menntaðir einstaklingar eins og þeir sem útskrifast hér í dag munu finna sín bestu tækifæri á Íslandi.“ Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, veitti verðlaun VÍ fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi. Þau hlutu að þessu sinni: Diljá Ragnarsdóttir, BA í lögfræði; Tómas Aron Viggósson, BA í lögfræði; Aron Björn Bjarnason, BSc í fjármálaverkfræði; James Elías Sigurðarson, BSc í tölvunarstærðfræði og Sindri Freyr Gíslason, BSc í viðskiptafræði. Vignir Guðmundsson, einn stofnanda Radiant Games og MSc í tölvunarfræði frá HR árið 2015 flutti hátíðarávarp útskriftarinnar og Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir, BSc í hugbúnaðarverkfræði, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda. Útskrifarhópurinn í tölum: Lagadeild 71 Grunnnám 39, meistaranám 32. Konur 33, karlar 38. Tækni- og verkfræðideild 199 Grunnnám 128, meistaranám 70, doktorsnám 1. Konur 89, karlar 110. Tölvunarfræði 149 Grunnnám 139, meistaranám 10. Konur 34, karlar 115. Viðskiptadeild 229 Grunnnám 111, meistaranám 117, doktorsnám 1. Konur 117, karlar 112,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Sjá meira