Íranir saka Sáda um árásina í Teheran Atli Ísleifsson skrifar 7. júní 2017 15:16 Fólk reynir að flýja íranska þinghúsið í morgun. Vísir/AFP
Fréttastofan Fars, sem tengist byltingarverðinum í Íran nánum böndum, hefur sakað stjórnvöld í Sádi-Arabíu um árásina í Teheran í morgun. Þá eru Bandaríkjamenn sakaðir um að hafa haft aðkomu að árásinni. Reuters greinir frá þessu. Hópur manna réðst í morgun á þinghúsið og grafhýsi erkiklerksins Ayatollah Khomeini, og herma nýjustu fréttir að tólf manns hafi látið lífið og fjölmargir særst. Ásökun Írana mun allra síst lægja öldurnar í þessum heimshluta eftir að fimm ríki - Sádí Arabía, Egyptaland, Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Jemen – slitu á dögunum stjórnmálatengslum við Katar vegna meints stuðnings stjórnvalda þar í landi við hryðjuverkamenn. Árásarmenn, vopnaðir Kalashnikov-rifflum, réðust inn í þinghúsið í Teheran og heyrðust reglulega skothvellir á svæðinu fram eftir degi þó að enn sé nokkuð óljóst með hvaða hætti framvindan var. Talsmaður leyniþjónustu Írans sagði í morgun að tekist hefði að koma í veg fyrir þriðju árásina í borginni. Hryðjuverkasamtökin ISIS höfðu áður lýst yfir ábyrgð á árásunum. Samtökin hafa raunar oft lýst yfir ábyrgð á árásum víðs vegar um heim þó að ekki sé nokkur fótur fyrir þeim fullyrðingum.JUST IN: Iran's revolutionary guards say Saudi Arabia was behind deadly attacks in Tehran - statement pic.twitter.com/WiYtd5ypVH— Reuters Top News (@Reuters) June 7, 2017
Tengdar fréttir Sprengju- og skotárás í Íran Einn hið minnsta er látinn og nokkrir eru særðir eftir tvær árásir vopnaðra manna í Tehran, höfuðborg Írans, í morgun. 7. júní 2017 07:55 Sjö sagðir látnir eftir árásina á íranska þinghúsið og grafhýsi Khomeini Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni á íranska þinghúsið og grafhýsi erkiklerksins Ayatollah Khomeini í Teheran í morgun. 7. júní 2017 10:06 Trump ræddi við konung Sádí Arabíu um Katar Bandaríkjaforseti hvatti konung til samstöðu ríkjanna við Persaflóann sem nú hafa einangrað Katar sökum meints stuðnings ríkisins við hryðjuverkamenn. 7. júní 2017 09:27 Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Stúlkan er fundin Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sjá meira
Sprengju- og skotárás í Íran Einn hið minnsta er látinn og nokkrir eru særðir eftir tvær árásir vopnaðra manna í Tehran, höfuðborg Írans, í morgun. 7. júní 2017 07:55
Sjö sagðir látnir eftir árásina á íranska þinghúsið og grafhýsi Khomeini Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni á íranska þinghúsið og grafhýsi erkiklerksins Ayatollah Khomeini í Teheran í morgun. 7. júní 2017 10:06
Trump ræddi við konung Sádí Arabíu um Katar Bandaríkjaforseti hvatti konung til samstöðu ríkjanna við Persaflóann sem nú hafa einangrað Katar sökum meints stuðnings ríkisins við hryðjuverkamenn. 7. júní 2017 09:27