Vill frekar verða klámstjarna en halda áfram í fótboltanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2017 18:58 Benoit Assou-Ekotto og Harry Redknapp fyrir nokkrum árum síðan. Vísir/Getty
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Birmingham City, er að leita að nýjum leikmanni til að styrkja liðið fyrir næsta tímabil og hann var búinn að finna einn þegar það kom upp smá vandamál. Redknapp segist hafa viljað semja við Benoit Assou-Ekotto, fyrrum varnarmann Tottenham Hotspur, en vandamálið við það sé ekki fótboltatengt. Harry Redknapp segir að leikmaðurinn hafi ekki lengur sama áhuga á því að spila fótbolta því hann hafi nú mestan áhuga á því að verða klámstjarna. Independent segir frá. Kamerúnmaðurinn gerði eins árs samning við franska liðið Metz í byrjun síðasta tímabils en hann hefur spilað fyrir Harry Redknapp hjá bæði Tottenham og Queens Park Rangers. Hinn 33 ára gamli Assou-Ekotto er þekktur að fara sínar eigin leiðir og hann hefur talað um að hann hafi ekki lengur sömu ástríðu fyrir fótboltanum sem er bara vinna í hans augum í dag. „Eina vandamálið er að hann hefur viðurkennt fyrir mér að hann vilji verða klámstjarna. Kannski næ ég einu ári út úr honum áður en hann ákveður að fara út í þá vinnu,“ sagði Harry Redknapp í léttum tón í viðtali við netþáttinn Spurs Show. „Hann er góður leikmaður og hver veit nema að hann spili með Birmingham á næstu leiktíð,“ sagði Redknapp. Benoit Assou-Ekotto á 24 landsleiki fyrir Kamerún og hann spilaði í sjö tímabil með Tottenham frá 2006 til 2013.
Enski boltinn Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti Fleiri fréttir Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Sjá meira