Pogba var dýrastur allra síðasta sumar en fjórir kostuðu meira á mínútuna Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. maí 2017 09:45 Paul Pogba var ekki svo dýr miðað við mínútur spilaðar. vísir/getty
Paul Pogba, leikmaður Manchester United, varð dýrasti leikmaður heims síðasta sumar þegar enska félagið keypti hann heim frá Juventus fyrir 93 milljónir punda. Verðmiðinn hljómar vitaskuld ótrúlega þó í heildina hafi þetta ekki verið stór hluti af heildarveltu Manchester United sem er ríkasta fótboltafélag í heimi. Þrátt fyrir að vera sá dýrasti sem keyptur var inn í deildina síðasta sumar kostaði hver mínúta sem hann spilaði ekki mestan aurinn. Hann spilaði svo mikið að hann er aðeins í fimmta sæti á þeim lista.Sky Sports er með skemmtilega samantekt yfir dýrustu mínúturnar í ensku úrvalsdeildinni en þar trónir Georges-Kévin Nkoudou sem keyptur var til Tottenham á toppnum.Georges-Kévin Nkoudou gerði ekki mikið.vísir/gettyFrakkinn var keyptur á níu milljónir punda en spilaði aðeins 49 mínútur. Hver mínúta sem hann spilaði kostaði því 183.673,47 pund eða ríflega 24 milljónir íslenskra króna. Belgíski framherjinn Michy Batshuayi olli miklum vonbrigðum hjá Chelsea en þetta ungstirni sem nánast öll lið í Evrópu vildu fá skoraði aðeins fimm mörk í deildinni í vetur, þar af þrjú af þeim eftir að Chelsea var búið að tryggja sér titilinn. Batshuayi kostaði Chelsea 33,2 milljónir punda en spilaði ekki bema 239 mínútur sem þýðir að hver mínúta sem hann spilaði var 138.912,13 punda virði. Lucas Pérez hjá Arsenal kemur næstur og svo Nampalys Mendy hjá Leicester en í fimmta sæti er Paul Pogba sem spilaði 2.608 mínútur fyrir Manchester United á síðustu leiktíð. Þrátt fyrir stjarnfræðilegt kaupverð kostaði hann „aðeins“ 35.755,37 pund á mínútuna.Smelltu hér til að sjá allan listann.mynd/sky sports
Enski boltinn Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn Ronaldo trúlofaður Fótbolti „Dóri verður að hætta þessu væli“ Íslenski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Íslenski boltinn Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Enski boltinn Ingibjörg seld til Freiburg Fótbolti Fleiri fréttir Enska augnablikið: Forsjáli félaginn sem missti af öllu Úr enska boltanum í eiturlyfjasmygl og sjö ára fangelsi Isak ætlar aldrei að spila fyrir Newcastle aftur Coote dæmdur í átta vikna bann fyrir ummælin um Klopp Enska augnablikið: Sá allra svalasti „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Donnarumma skilinn eftir heima Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Hafa selt næstum alla vörnina en liðsstyrkur á leiðinni frá liði Hákonar Grealish lánaður burt en City vill ekki selja Savinho Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Newcastle loks að fá leikmann Delap með tvö í öruggum sigri í síðasta leik fyrir mót Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enska augnablikið: Hjátrú og alsæla Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Sjá meira