Daniel Ceballos tryggði Spánarmeisturum Real Madrid sigur á Alaves í dag.
Ceballos skoraði bæði mörk Madrid í 1-2 sigri á Alaves, sem er án sigurs í deildinni.
Real lyfti sér með sigrinum upp í 4. sæti spænsku deildarinnar, en byrjun tímabilsins hjá Spánarmeisturunum hefur ekkki verið sannfærandi og eru þeir fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona, sem á leik til góða.
Frammistaðan í dag var ekki sannfærandi, en liðið átti aðeins sjö skot á rammann, þrátt fyrir að hafa verið 67% með boltann.
Ceballos tryggði Real sigur
