Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Ritstjórn skrifar
Nokkur stór mál bíða afgreiðslu fyrir þingrof þann 29. október og því gætu þingstörfin dregist mjög nálægt kosningum ef ekki verður sátt um afgreiðslu þeirra. Rætt verður við forsætisráðherra um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Í fréttunum verður einnig fjallað um samningaviðræður Reykjavíkurborgar og Útlendingastofnunar um að borgin hýsi 110 hælisleitendur til viðbótar þeim 90 sem hún hýsir í dag.

Þá verðum við í beinni frá skyndihjálparnámskeiði Rauða krossins og fáum lauflétta kennslu í þessum lífsnauðsynlegu fræðum og kynnum okkur Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík, RIFF, sem settur verður í þrettánda sinn í næstu viku.

Þetta og meira til í kvöldfréttum Stöðvar 2, klukkan 18:30 á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar og í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×