Óreyndur þjálfari en með mikla reynslu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. ágúst 2016 06:00 Andriy Shevchenko. vísir/getty
Andriy Shevchenko var í sumar ráðinn nýr landsliðsþjálfari Úkraínu og hans fyrsta verk verður að taka á móti íslenska landsliðinu í undankeppni HM 2018. Helgi Kolviðsson, nýr aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands, fylgdist vel með Úkraínu á EM í sumar og segir liðið gríðarlega sterkt þó svo að Úkraínumenn hafi tapað öllum sínum leikjum í Frakklandi og ekki náð að skora mark. Með nýjum þjálfara koma nýjar áherslur og sagði Helgi á blaðamannafundi KSÍ í gær að mikill undirbúningur sé að baki hjá íslenska liðinu fyrir leikinn til að geta undirbúið leikmenn fyrir hvaða aðstæður sem er. Helgi segir enn fremur að þó að Shevchenko hafi ekki mikla reynslu sem þjálfari komi það ekki að sök. „Hann er stjarnan í Úkraínu enda búinn að vinna alla titla sem hægt er sem leikmaður. Hann veit hvað býr í liðinu og með hans innkomu vilja þeir fá hugarfar sigurvegarans í leikmannahópinn,“ segir Helgi. „Hann býr að mikilli reynslu frá leikmannsferli sínum enda hefur hann starfað með mörgum af bestu þjálfurum Evrópu á ferlinum. Hann er líka með stóran hóp í kringum sig í sínu starfsliði.“ Shevchenko verður fertugur í lok næsta mánaðar en hann spilaði með Dynamo Kiev, AC Milan og Chelsea á tæplega tveggja áratuga ferli, auk þess að eiga að baki 111 landsleiki með Úkraínu.
Fótbolti Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Íslenski boltinn Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Handbolti Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu Enski boltinn Fleiri fréttir Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Sjá meira