Luis Suárez brjálaður á bekknum þegar Úrúgvæ datt úr leik | Sjáðu öll mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2016 07:30 Javier"Chicharito" Hernandez fagnar marki sínu í nótt. Vísir/Getty
Mexíkó og Venesúela tryggðu sér í nótt bæði sæti í átta liða úrslitum hundrað ára afmælismóts Ameríkubikarsins eftir sigra í annarri umferð C-riðilsins en Úrúgvæ og Jamaíka eru jafnframt úr leik. Venesúela vann 1-0 sigur á Úrúgvæ og fylgdi eftir 1-0 sigri á Jamaíku í fyrsta leik og Mexíkó vann 2-0 sigur á Jamaíka en Mexíkóbúar unnu Úrúgvæ 3-1 í fyrstu umferðinni. Bæði Mexíkó og Venesúela eru því með sex stig en Úrúgvæ og Jamaíka eru jafnframt stigalaus og á leiðinni heim eftir lokaumferð riðlakeppninnar.Salomon Rondon skoraði eina markið á 36. mínútu þegar Venesúela vann 1-0 sigur á Úrúgvæ en tvö mörk hafa dugað Venesúela til að fá sex stig. Þetta var fyrsti sigur Venesúela á Úrúgvæ í tíu ár. Edinson Cavani fékk þrjú frábær færi í leiknum til að halda lífi í sínu liði en Luis Suárez gat bara horft á leikinn frá hliðarlínunni. Luis Suárez tók eitt brjálæðiskast á bekknum undir lokin þegar hann virtist komast að því að hann mætti ekki fara inná. Luis Suárez er að jafna sig eftir meiðsli og landsliðsþjálfarinn Oscar Tabarez ákvað að hafa hann ekki virkan í leiknum. Suárez hitaði samt upp í fimmtán mínútur en fékk svo að vita að hann væri ekkert að fara inná völlinn. Barcelona-maðurinn var allt annað en sáttur með það.Mexíkó vann 2-0 sigur á Jamaíka í hinum leik riðilsins. Javier"Chicharito" Hernandez skoraði fyrra markið með skalla á 18. mínútu og vantar nú aðeins eitt mark til að jafna markamet landsliðs Mexíkó sem Jared Borgetti á. Oribe Peralta innsiglaði sigurinn níu mínútum fyrir leikslok og markatala liðsins er nú 9-0 síðan að Juan Carlos Osorio tók við þjálfun landsliðsins. Jamaíkamenn fengu reyndar færin í fyrri hálfleik til að skora mörkin en tókst ekki að skora og hafa þar með spilað 180 markalausar mínútur á mótinu. Duwayne Kerr, markvörður Jamaíka og Stjörnunnar sat allan tímann á bekknum annan leikinn í röð. Hann datt í raun út úr tveimur keppnum 9. júní því fyrr um kvöldið sló ÍBV lið Stjörnunnar út úr Borgunarbikarnum. Þegar Duwayne Kerr kemur aftur til Ísland þá getur hann einbeitt sér að Pepsi-deildinni eins og félagar hans í Garðabæjarliðinu.Markið úr leik Venesúela og Úrúgvæ Mörkin úr leik Mexíkó og Jamaíka
Fótbolti Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Gri/Nja - Fram | Gætu endað hlið við hlið í kvöld Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Sjá meira