Umferðarstjóri sem gerði mistök reyndi að vara lestirnar við Óli Kr. Ármannsson skrifar 17. febrúar 2016 07:00 Hundrað og fimmtíu manns voru um borð í lestunum sem skullu saman. Hér er krana beitt til að ná öðrum vagninum af vettvangi. Fréttablaðið/EPA
Líklega leiddu mannleg mistök umferðarstjóra til lestarslyssins sem varð ellefu að bana í suðurhluta Þýskalands, hafa erlendir miðlar eftir saksóknara í Þýskalandi. Yfir 80 til viðbótar slösuðust þegar tvær farþegalestir skullu saman á teinum við bæinn Bad Aibling í Bæjaralandi, að morgni 9. febrúar. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir saksóknara að svæðisstjóri hafi beint báðum lestum inn á teinana en svo reynt að vara lestarstjórana við. Maðurinn, sem sé 39 ára gamall, verði líklega kærður fyrir manndráp af gáleysi og gæti átt yfir höfði sér fimm ára fangelsi. „Ef hann hefði fylgt reglunum, þá hefði ekki orðið neinn árekstur,“ hefur BBC eftir Wolfgang Giese, aðalsaksóknara. Giese nafngreindi ekki manninn sem var yfirheyrður af lögreglu, í viðurvist lögmanns síns, í byrjun vikunnar, að því er fram kemur í umfjöllun Guardian. Lögregla er sögð telja að svæðisstjórinn, sem umsjón á að hafa með því að beina vögnum á rétta teina og tryggja öryggi lestanna, hafi sent röng skilaboð í lestirnar. Lestirnar hafi átt að mætast á lestarstöð þar sem teinarnir skiptast, en skullu þessi í stað hvor framan á aðra á um hundrað kílómetra hraða á stað þar sem teinarnir liggja í sveig. Guardian hefur eftir Giese að bilun í tæknibúnaði hafi verið útilokuð, en sérfræðingarnir sem fari með rannsóknina ætli að endurgera slysið til að prófa kenningu sína um hvað átt hafi sér stað.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Sjá meira